Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

sunnudagur, maí 25, 2003

Neinei halló halló, fyrirgefið mér, vá hvað er langt síðan maður hefur verið hérna..
Síðan síðast er margt og mikið búið að gerast. Ég er búin að fara til Ítalíu og var þar viku og get aðeins sagt að það hafi verið ÆÐISLEGT. Alveg yndisleg ferð í alla staði. Flugum til Frankfurt í Þýskalandi og gistum í Ulm og keyrðum þaðan daginn eftir í gegnum Austurríki með viðkomu í Innsbruck þar sem ég lét stóran draum rætast og lét teikna portrait eða andlitsmynd af mér og er hún rosa flott allavega að mínu mati. Síðan keyrðum við áfram til Ítalíu og enduðum í Torbole við Garda. Við sungum heilan helling þessa viku við þessi þvílíku fagnaðarlæti viðstaddra. Svo leið vikan alltof fljótt og hef ég svona ,,heimþrá" enn til Ítalíu. Síðan komu prófin og gekk mér ágætlega í þeim og fékk 19 einingar af 22 sem er alveg ágætt þó svo ég hafi viljað að ná öllu. Síðan var brautskráning í skólanum á Föstudag þar sem við sungum auðvitað og í gær sungum í Ljósafossi og um kvöldið var Eurovision þar sem við náðum 9. sæti sem var alveg frábært og óska henni Birgittu innilega til hamingju með árangurinn. Síðan í dag fór ég í stúdentaveislu til Laugu vinkonu sem var að útskrifast með glæsibrag á Föstudag.
Úff ætli ég segi ekki nema bless í bili.. þangað til, Sveinbjörg María

This page is powered by Blogger. Isn't yours?