Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

fimmtudagur, maí 20, 2004

HELLÚÚúú.....;o) 

Jæja, það er nú komið dálítið síðan maður hefur látið heyra í sér:/ Hmm.. kannski ekki alveg nógu dugleg að láta heyra í mér.. hehe...;o)
En allavega, það er búið að vera nóg að gera síðan síðast. Það komu próf og próf og aftur próf... síðan fékk maður einkunnirnar í gær. Þetta var nú svona þokkalegt. Ég náði öllu nema ensku sem kom mér sjálfri kannski á óvart en ég náði LHF-113 (Lyfhrifafræði) sem ég var ofsalega hrædd um að falla í en HALLELÚJA, segi ekkert annað en VÁ, þessi grein réði því hvort ég myndi útskrifast næstu jól eða ekki. Þannig að ég mun útskrifast þá:O)
Síðan skrapp ég líka í bæinn í gær að skrifa undir ráðningasamning fyrir vinnuna mína í sumar. Er alveg ofsalega glöð:) Verð á Landsspítalanum á hjartadeildinni, þar sem ég var síðasta haust. Var víst alveg voðalega heppin að fá vinnu:)
Ég veit ekki alveg hvað ég ætti að bulla meira í bili.....


....þannig sæjónaríus.... .....Moi sjálf...:o)



P.s. læt kannski einkunnirnar fylgja til gamans:)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?