Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

mánudagur, ágúst 30, 2004

Búenos días:O) 

Hellú, læt ég heyra aftur aðeins í mér.
Það sem er helst í fréttum er það að skólinn er byrjaður og það er bara svosem ágætt, náttúrulega SÍÐASTA önnin mín, jibbí;o) Er með fína stundatöflu, komst í spænsku eftir að hafa sótt um hana í 3 ár og það er ótrúlega gaman, bara að læra sagnir er gaman... hmm.. hvorum megin fór ég fram úr í morgun?.... .... heheh...;O)
Síðan um helgina fór ég í áheyrnapróf fyrir Idol stjörnuleit og það gekk svosem allt í lagi. Komst reyndar ekki áfram en þetta var samt rosa gaman. Ég var alveg þokkalega stressuð að það var næstum ekki fyndið, ég meina, ég skalf og titraði öll þegar ég söng. Eftir sönginn báðu dómararnir mig að fara aðeins fram því þeir þurftu að „funda aðeins", ég var bara ókei. Síðan kom ég inn aftur og svarið var:„ þú söngst skemmtilega(eða eitthvað svoleiðis) en kannski ekki núna." Ég sagði bara takk og fór og þannig var nú það. Ekkert að skammast sín fyrir:) Kannski maður prófi á næsta ári.. hehe..;)
Allavega, held að maður láti þetta duga í bili, já og með átakið, það gengur bara fínt, kemst náttúrulega minna í ræktina en áður því að maður er nú komin aftur heim í sveitina en maður verður bara að vera duglegur að fara út að labba;)
...Cjú all soon folks........
....................Moi sjálf.........;)
Megið endilega senda mér póst ef ykkur liggur eitthvað á hjarta;)
mailto:sveinbjorg@nyc.com

mánudagur, ágúst 16, 2004

HELLÚ EVRÍBODÝ 

Hallóhalló!!!

Lætur maður loks heyra í sér eftir langan tíma:)Ekkert búin að vera smá löt síðan
síðast:( Allavega, það er búið að vera nóg að gera í vinnunni og það er bara fínt.

Síðan er ég búin að vera í átaki og nýjustu tölur eru þær, að það eru farin fimm kg. á mánuði og takið eftir: ÁTTA KG. bara af FITU. Þetta er alveg ótrúlegt og plús að það eru farnir slatti af sentimetrum hér og þar:) Gæti ekki verið glaðari:o) Þar að auki er ég að gera þetta sjálf og engar „töfralausnir". Þjálfarinn minn (sem ég ákvað loksins að hafa samband við:) er alveg frábær náungi sem er gjörsamlega að bjarga lífi mínu!! Ég er núna alltaf að hugsa: „hvað ef ég hefði ekki haft samband við hann, hvar væri ég þá?" Hann peppar mann ótrúlega upp sem er ekki smá mikilvægt.

Allavega, þá er þetta síðasta vinnuvikan hér í bænum og er ég þá að fara aftur heim austur og skólinn er barasta að byrja á Mánudaginn eftir viku. Þetta er alveg ótrúlega fljótt að líða. Síðasta önnin í skólanum og svo er bara útskrift um jólin! Búin að vera 4 ár í skólanum. Svo er maður bara að færa sig um set eftir áramótin og flytja í bæinn. Er meira að segja, búin að tryggja mér (næstum öruggt) fasta vinnu eftir áramótin á hjartadeildinni. Ekkert smá glöð.

Vá, ætli maður hætti þessari munnræpu ekki núna. Þetta var þokkalega fyrir mánuðinn;o)
Blessó í bili.... ......Moi sjálf....

This page is powered by Blogger. Isn't yours?