Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

laugardagur, nóvember 27, 2004

*HELLÚHELLÚ* 

Jæja, læt ég heyra í mér,
maður má nú ekki bregðast aðdáendunum.... hehe... segi bara svona.
Það er búið að vera við það sama síðan síðast, skóli og aftur skóli, en þetta er farið að styttast svo um munar. Vá, það eru bara þrjár vikur í útskrift!! Ohh hvað mig hlakkar til:o)
Við vorum að dimmitera í gær og það var geðveikt mikið stuð og geðveikt mikið gaman. Byrjaði á því að við hittumst í Selinu sem er ekki langt frá skólanum og fórum í búningana og æfðum söngtextana. By the way, við vorum Adam og Eva. Bara flottustu búningarnir. Um tíuleytið fórum við inn í skóla og sóttum nemendur í stofurnar og trölluðum í miðrýminu. Enduðum á því að borða pitzur með kennurunum inn í Sal. Svo fór hópurinn á röltið um bæinn, reyndar ekki allir saman. Svo var lagt af stað í óvissuferð klukkan eitt frá Selinu. Leiðin lá út í Hveragerði þar sem farið var í ratleik, svona „Amazing race". Var skipt í nokkra 6-7 manna hópa. Hlupum um alla Hveragerði og gerðum ýmis verkefni. Eitt af því síðasta sem við gerðum var að fara yfir gil eða á bakvið Laugarskarð í svona taug á geðveikum hraða og það var geggjað maður. Ég var í svona nett sjokki eftir á en þetta var ÓGEÐSLEGA GAMAN $:O) Síðan kepptu tvö og tvö lið saman í allskonar þrautum, meðal annars reipitogi og svo vorum við með eitt egg sem hver hópur átti að passa allan tímann. Hvað haldiði að hafi átt að gera við það? Það átti einn úr hverjum hóp að borða innihaldið úr því!!! Semsagt HRÁTT!!! Ég gerði það fyrir minn hóp, ég var það vel í glasi að ég kallaði, ÉG SKAL gera þetta. Dísus kræst, ógeð maður. Náði þó að halda því niðri, meira en sumir gátu.. hmm... ældu því EKKI út úr sér... jakkettíjakk.. hehe..
Eftir þetta ævintýri var haldið af stað og brunað til Reykjavíkur og í Kópó í Smáralindina að borða. Fórum á Friday´s. Það var bara fínt. Fengum þvílíkt þykka hamborgara í brauði með grænmeti og frönskum. Reyndar voru þeir eiginlega alveg rauðir í gegn (allavega minn). Maður var nú ekki að nenna að gera eitthvað mál úr þessu þannig að maður át hann bara. Eftir ðö dinner var farið slatta á rúntinn á rútunni og farið síðan á Players í Kópavogi og horft á Idol, drukkið og skemmt sér og svo haldið heim á leið eftir rosa skemmtilegan dag.
Jæja, ætli þetta sé ekki nóg í bili, allavega... Hey jú, er komin með fasta 100% vinnu upp á spítala eftir áramótin. Ekkert smá happy:o)
Sí jú sún all mæ pípol.....................
.................Moi sjálf.....
P.s. Hæhæ Björgin mín:o) Veit nú ekki hvað ég að segja en förðunarfræðingur með meiru og ýkt flippuð!!!!!!!!! Nei, ég segi svona rúsínan mín:o) Ein af frábærustu manneskjunum sem ég þekki þótt ég segi sjálf frá:o) **Love you**

föstudagur, nóvember 12, 2004

Ó MÆ GAD........... 

Halló mínir kæru aðdáendur;o) hehe...
Ég verð að biðjast velvirðingar á þessum dónaskap:o( Það er sko búið að vera klikkað að gera. Skóli og aftur skóli. Próf og aftur próf. Enda er útskriftin á næsta leyti:o) Ohh.. ég hlakka svo geðveikt til:O) Erum að fara að dimmitera eftir 2 vikur og svo er útskriftin 17. desember:O)
Svo er mín búin að vera frekar dugleg í ræktinni, hef bara komist um helgar, en það er að líða að því að maður komist miklu oftar.. hehe.. Reyndar búin að vera ansi slöpp í fótunum, þetta er víst beinhimnubólga, ógeðslega vont. Sölvi ráðlagði mér góðar æfingar sem ég er að gera og gengur bara ágætlega. Vonum það besta:O)
Ætli ég láti þetta ekki vera nóg í bili, en jú...
(O:**Elsku Tóta mín og Símon, innilega til hamingju með litlu snúlluna
og hafið það sem alltaf best**:O)
C jú all later.... ......Moi sjálf...;o)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?