Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

sunnudagur, janúar 30, 2005

Gleðilegt nýtt ár og allt það........... og líka útskrifuð....;o) 

Hallóhalló mínir dyggu lesendur. Biðst innilegrar afsökunar á þessari töf sem hefur orðið á að uppfæra hjá mér síðuna. Áður en ég held áfram er svona við hæfi að óska öllum gleðilegs nýs árs og takk fyrir gömlu árin.
Jæja, helstu tíðindin eru eins og flestir vita og stendur í titlinum þá er mín bara útskrifuð og orðin sjúkraliði:o) Ekkert smá gaman. 17. desember árið 2004. Þetta var mesti hamingjudagur lífs míns get ég fullyrt og vil bara þakka fyrir allar gjafir og heillaóskir sem ég fékk.
Nú ætla ég að monta mig smá, ég var sú eina sem brautskráðist af þremur brautum, þvílíkt mikið, eða þannig... hehe... Allavega, útskrifaðist af........ SJÚKRALIÐABRAUT með...... VIÐBÓT TIL STÚDENTSPRÓFS og með..... PRÓF AF UPPELDISBRAUT.
Og það er ekki nóg með það heldur fékk ég líka verðlaun. Ég af öllum fékk verðlaun. Ég er náttúrulega búin að vera í kórnum í 9 annir eða allan þann tíma sem ég var í skólanum, 4 1/2 ár!!! þæng jú verý mödj;O) Það stóð eitthvað um viðurkenningu fyrir dýrmætt framlag til tónlistar í skólanum... hehe... Palli vinur minn fékk sömu verðlaun, vorum sko þokkalega best.... HAHA.... segi svona. Þetta var allavega mikill heiður fyrir okkur. Vorum alveg sammála um það. Veislan var algjört æði. Hún var fámenn en góðmenn, haldin í sal Karlakórs Selfoss. Kósý, búið að skreyta þvílíkt sætt í salnum.
Síðan 17. janúar byrjaði ég að vinna uppi á hjartadeildinni sem ég var að vinna í sumar og er ég komin með fast starf og í 100% vinnu. Ekkert smá fínt og með öllu þessu æðislega fólki sem maður er að vinna með. Það vilja sko allir fyrir mann gera til þess að manni líði vel í vinnunni og komist betur inn í hana.
Já og í framhaldi af því að byrja að vinna varð maður að finna sér samastað og sendi ég auglýsingu í Moggann og Fréttablaðið og voru viðbrögðin ekkert smá mikil. Ætli það hafi ekki verið um rúmlega 20 manns sem hringdu og ég endaði að leigja herbergi í Laugardalnum. Ekkert brjálæðislega stórt en þó nóg fyrir mig;o)
Ætli ég hætti þessu ekki bili en allavega, TAKK ALLIR FYRIR MIG!!!!...........
.......................Moi sjálf...............

This page is powered by Blogger. Isn't yours?