Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

laugardagur, mars 26, 2005

Jæja þá..... 

Nei góðan og blessaðan daginn eins og maðurinn sagði:O)
Jæja, lætur maður þá heyra eitthvað í sér og það úr vinnunni... hmm.... Eitthvað nýtt;) Dálítið síðan síðast skrifað var.
Ég verð nú barasta að viðurkenna að það hefur ekkert neitt spes gerst síðan síðast. Bara vinna, ræktin, sofa og þessu öllu saman snúið í hringi. Frekar fyndið en þetta er bara alveg ágætis lífstíll held ég.
Hey jú, það var árshátíð hjá okkur um daginn á hjartadeildunum og hjartaómun og hjartaþræðingunni. Það var ekkert smá gaman. Var bleik og svört í klæðnaðinum. Var í bleikum bol, með bleika rós í hárinu með bleika eyrnalokka. Síðan var ég í svörtu pilsi og skóm. Þetta kom bara mjög vel út var mér sagt:O) Ég skal koma meira að segja með eina játningu, ég hef ALDREI farið á árshátíð áður, þótt svo ótrúlega hljómi.... hmmm...;o/ Allavega skemmti ég mér alveg ógeðslega vel, rosalega góður matur, ÆÐISLEG skemmtiatriði (Kvikmyndagerðin Mósi o.fl.;o) Síðan var dansað og dansað þar til fólk dreif sig margt niður í bæ. Allvega, takk fyrir alla skemmtunina.
Svo skrapp maður í fermingu um daginn og rosa stuð það bara, til hamingju með ferminguna Danni minn:)
Ég held að ég sé komin með nóg af einhverju bulli í bili, hehehe...
Kærasta kveðja......... .............Moi sjálf.....;o)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?