Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

þriðjudagur, október 18, 2005

Ó MÆ GAD!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! 

Ji minn eini, sorry allir á þessari töf á bloggi frá mér. Ég ætlaði nú ekki að trúa því hversu langt er síðan ég skrifaði hérna, segi bara STóRT úbbosí
*ROÐNOGSKÖMMUSTULEGÍFRAMAN*


En allavega, það er búið að vera margt og mikið að gerast hjá minni. Sérstaklega í ágúst. Ég ákvað að fara í Reykjavíkurmaraþonið og ég stóð við það, jibbí;o) Fór heila ÞRJÁ kílómetra þótt ótrúlegt megi virðast, mikið fyrir mig og það gekk bara vel og hélt vegalengdina útog var ekkert stolt af sjálfri mér því flestir þeir sem mig þekkja vita að ég er með afskaplega lítið þol og úthald þannig að.... ég var sigurvegari í sjálfu sér, finnst mér ;O)

Síðan fór ég í Idol í lok ágúst og það gekk bara vel. Já, já segjum það bara. Ég komst ekki til Bubba og þeirra en þau sem dæmdu mig sögðu að því miður kæmist ég ekki í gegnum síuna þeirra núna en ég mætti ekki að hætta æfa röddina þannig að maður prófar ábyggilega aftur á næsta ári, er það ekki?;)
Síðan lenti ég í viðtali á Idol Extra á Sirkus hjá Svavari Erni tískulöggu, ekkert smá fyndið. Mér fannst ég svo fyndin og asnaleg að það var ekkert eðlilegt en þetta var svona OK, fékk þó minn skerf af 15 mínútna frægð... hehe...;O)

Veit nú ekki hvað ég á að segja meira en að ég er bara búin að vera vinna og vinna eins og ég veit ekki hvað ,en þetta er bara gaman allt saman.

Jæja, verð að láta mig hverfa í vinnuna...

.........MOI SJÁLF........

This page is powered by Blogger. Isn't yours?