Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

föstudagur, október 24, 2008

Sjúkraþjálfun var það heillin... 

Er ekki alveg móðursjúk eftir allt saman með þetta ökklakvikindi mitt, æi, það var bara ósköp jákvætt á þessum síðustu og verstu (samt þoli ég þetta orðatiltæki ekki, hehe.. :-) Fríða Rún ákvað í gær að nú skyldi ég láta sjúkraþjálfara tékka á þessu ökklaveseni og hnénu líka því það er komið svo langt síðan að ég meiddi mig og hringdi í morgun um leið og ég var komin heim af næturvaktinni. Það var hægt að troða mér að klukkan hálftvö þannig að sumir þurftu að sofna strax til að geta vaknað eftir hádegi.. Zzzz.. ;-)

Fór þarna einhversstaðar í Bolholtinu í sjúkraþjálfun sem heitir Gáski og hitti á frábæran sjúkraþjálfara, hana Eddu. Ég meira að segja rataði strax á staðinn í fyrstu tilraun! Jibbí og hipphipp húrra fyrir ratvilltu bollunni:) Hún skoðaði ökklann og mældi meðal annars liðleika í liðþófanum eða eitthvað svoleiðis. Kann ekki alveg að koma orðum að þessu. Liðleikinn var súperflottur að það hálfa væri nóg:) Hún hélt að hnédæmið og ökklinn tengdist ekki, að hnéð væri meira svona tengt álagi. Fann til þegar hún var að snúa ökklanum til hliðar og upp og aðeins fram. Hún var farin að hallast að því að ég hefði misstigið mig mjög illa frekar en snúið honum alveg og það hefði að öllum líkindum safnast talsverður bjúgur og vesen sem veldur því að ökklinn sé svona slæmur ennþá. Man nefnilega ekkert hvernig ég lenti með ökklann í Esjunni. Hún mælti með að ég færi í stigavélina og hjólið. Hún sagði að mig minnir að ég mætti svona flestallt. Svo ætlar hún eitthvað að teipa ökklann og eitthvað sniðugt. Byrja á því að fara þrisvar sinnum til hennar í næstu viku. Hún vildi gera það sem hægt væri til að sparka í "rassinn" á ökklanum svo ég kæmist aftur að skokka af viti og kíkja líka á hnéð:) Hún endaði svo tímann í dag á að setja leisertæki á auma svæðið og gerir það líklegast aftur. Fann nú ekki mikið fyrir því en var samt pínu spes. Er dálítið aum núna.

Nóg af þessu ökklauppdeiti í bili:) Fór með henni Jórunni minni í Heiðmörkina á þriðjudag og ákváðum bara að ganga rösklega því þessi elska vildi ekki hætta mikið á fótinn í þessu veseni. Jedúdda mía hvað það var kalt, það var hryllingur bara.. brrr... en það var samt mjög gott að komast út í smá labbitúr og hreinsa hugann aðeins.

Bara vona að ég fari að komast að hlaupa af stað aftur bráðum, er komin með ógeð á þessu veseni. Er svo hrædd um að Laugaskokkararnir mínir séu búnir að gleyma mér og halda að ég sé bara hætt:-/ Þeir sem lesa þetta mega láta vita að svo sé ekki.. ...svona til að laga samviskubitið mitt:) Það verður haustþon núna um helgina og ég ætlaði einmitt að vera með en get ekki tekið þátt... buhuhuuu.. :/ Ætla að reyna að kíkja aðeins og taka á móti henni Fríðu Rún minni þegar hún kemur í mark og reyndar líka Birni Rúnari lungnadoksa úr astmaverkefnunum tveimur. Þau ætla í paraþon og eiga eftir að rústa þessu sko, krossa putta:) Svo auðvitað allir hinir flottu Laugaskokkararnir mínir:-)

Menningarhorn dauðans í kreppunni miklu: Sko, er ekki að meika allt þetta tal og læti með kreppuna og slíkt þannig að ég skellti mér bara 2 daga í röð í bíó. Fór með Helgu sys á mánudaginn á The Women, algjör konumynd og rosa góð. Svo á þriðjudaginn fór ég með Lindu Björk og Kristjönu á The Nights In Rodante. Hún var líka rosalega góð. Svona rómantísk og góð. Það fíla ekki allir svoleiðis en ég er bara svoleiðis, sorrý:) Síðan er ég að fara í leikhús annað kvöld á Fló á skinni. Það verður örugglega fjör. Er ekki búin að fara í leikhús í örugglega tæp 2 ár eða eitthvað þannig að þetta verður næs.

Svo er það nudd hjá Valdísi minni á morgun og helgarfrí.. jei.. fyrir utan að vesenast í þessu efnafræðidrasli.. oh hvað ég þoli ekki efnafræði.. var ég einhvern tímann búin að nefna það...??

Best að hætta þessu blaðri og fara að gera eitthvað af viti í vinnunni (kemur það á óvart að það sé verið að blogga í vinnunni.. hehe... :-)

Hafið góða helgi fólkið mitt og knús og kram, Moi sjálf

mánudagur, október 20, 2008

Allt og ekkert og ekkert og allt... 

.. svona er ég tóm í mér þessa dagana;-) Auðvitað er ég á enn einni næturvaktinni að pára nýtt bloggedíblogg. Það er liggur við eini tíminn minn sem ég hef til að skrifa eitthvað sniðugt, sko meðan það er rólegt, 7-9-13!! Aðeins að storka örlögunum með því að skrifa þetta hér, því það er dæmigert að eftir smástund verði allt brjálað að gera :þ

Annars er fátt markvert búið að vera að gerast undanfarið þannig séð. Búin að vinna eins og brjálæðingur og aðallega á næturvöktum. Úps, lét náttúrulega plata mig í 50% næturvaktir! Á mér eiginlega ekkert líf. Svo hefur efnafræðidraslið alveg búið að eiga mig með nánast öllu, ohh hvað ég þoli ekki efnafræði því það er staðreynd að efnafræðin (og reyndar svosem stærðfræðin líka) hata Sveinbjörgu Maríu með ráði og dáð, það verður að segjast eins og er :þ Æi, bara vona að þetta gangi upp á endanum ef ég ætla að reyna að koma mér í hjúkkuna á næsta ári.

Þetta var ömurleg æfingavika sem var að líða eins og undanfarnar rúmar 3 vikur. Einungis 13 km hlaup, skíðavélaæfing í Laugum og hjólað á sama stað og gert slatti af magaæfingum og armbeygjum og svoleiðis.Hef líka synt töluvert af og til. Ökklinn er bara ekki orðinn nógu góður sem mér gremst mjög mikið. Orðin svo óþolinmóð eins og ég veit ekki hvað. Þetta skeði 27. september og ég er ekki orðin góð. Á þetta ekki löngu orðið gott?? Finnst mjög vont að kreppa ökklann og snúa til hlíðar og lyfta upp. Fór í Heiðmörkina á þriðjudaginn og skokkaði slatta og fann ekkert fyrir neinu á meðan því stóð en eftir æfinguna fann ég til. Bara vona svo innilega að þetta fari að koma. Fór heimilislæknisins á fimmtudag og lét hann kíkja á þetta fyrst maður var hjá honum, hann taldi að ég hefði tognað frekar illa en bjóst við að þetta færi að lagast.Svo var ein vinkona sem ég hef ekki séð ótrúlega lengi að plata mig að koma í sjósund í síðustu viku. Ég komst reyndar ekki en stefni að því að standa við áskorunina bráðum:) Fríða Rún var reyndar ekki mjög hrifin af því út af astmanum. En ætla að prufa pínkulítið til að standa við áskorunina. Þarf víst bara að dýfa bara tásunum út ef ég vil það. En hún bannaði mér að fara að öskra... hehe... sé mig í anda eiginlega... brrr... ;-)

Svo var önnur Astmafjallgangan í gærmorgun og ég missti af henni út af vinnunni. Vá hvað ég var svekkt af að missa af henni. Allir sem mögulega gátu skipt voru annaðhvort í útlöndum eða að vinna þessa helgi, arg! Frétti að það hefði verið frekar erfiðar aðstæður. En mín á eftir að komast í næstu fjallgöngur þannig að það er bara jákvætt:)

Talandi um vinnuna hvað ég er fegin að vera í fríi næsta einn og hálfan sólarhringinn. Búin að eiga svo erfitt um helgina. Fékk einhverja þvílíka magakveisu að það hálfa væri nóg. Plús að vera þvílíkt óglatt og flökurt og lystarlaus. Verð voðalega fegin að komast heim í bólið í fyrramálið:)

Held að allt þetta ómerkilega uppdeit sé komið í bili:)

Knúsikrús, Moi sjálf

föstudagur, október 10, 2008

Ökkladrasl :-( 

Það er barasta ansi lítið búið að gerast hjá mér síðustu dagana nema að vinna að ég veit varla hvað ég heiti eða þannig og auðvitað er ég í vinnunni þegar ég pára þetta, hehe... :þ
Æfði ekkert í viku út af ökklanum eftir Esjulabbið þar síðustu helgi. Búin að vera þvílíkt aum að það hálfa væri nóg. Var mjög bólgin fyrstu 2 dagana og haltraði mikið en það jafnaði sig síðan að mestu en vesenið er þegar ég sný ökklanum til hliðar eða upp þá er stingandi verkur eða óþægindi. Búin að vera með þvílíkt samviskubit yfir þessu æfingaleysi að það hálfa væri nóg.

Fór í nudd til Valdísar fyrir viku síðan og ég hélt ég myndi deyja,
þetta var svo hrikalega vont. Þegar hún tók á leggjunum, gretti ég mig víst og hélt niður í mér andanum. Hún sagði við mig að ég mætti alveg gretta mig eins og ég vildi en yrði eiginlega að anda fyrir sig.. hehe.. þrjóskuormurinn ég;o) Svo tók hún á ökklanum og í fyrsta sinn æpti ég smá til að láta vita af mér. Hún hitti akkúrat á vonda punktinn en sagðist þurfa að taka hart á honum upp á blóðflæðið, úff verý, verý bad sko...

Byrjaði reyndar svo aðeins í þessari viku að reyna að koma mér í æfinga gang en með misjöfnum árangri svo sem. Búin að fara í smá sund. Svo á þriðjudag rölti ég eða skokkaði MJÖG hægt um 5.0 km á sirka 50 mín í Kópó. Sko, var að leita að fyrirbæri sem kallast Kópavogströppur sem undirrituð neyðist til að segja að hún hafi ekki fundið að það er eiginlega ekki fyndið. Var eiginlega hálfhræðilegt. Þannig að ég biðla til Kópavogsbúa og spyr: Hvar eru þessar blessuðu Kópavogströppur??? Veit að þær eru hjá einhverri kirkju en sjónlausa ég sá ekkert í myrkrinu, en neyðarlegt! Ætlaði að hitta á eina sem er í astmahópnum en komst ekki á æfingu sem var í kvöld en ætlaði að fara þessar "blessuðu" Kópavogströppur en aldrei hitti ég á hana:o/ Það er alveg greinilegt að ég er ekki úr Reykjavik $:-þ

Svo var samæfing hjá fjallaastmahópnum hjá Fríðu Rún í dag. Verður alltaf einu sinni í mánuði þolæfing með Fríðu Rún og síðan náttúrulega fjallganga líka. Þetta var bara rosalega gaman þrátt fyrir að það væru brekkuhlaup á dagskrá. Vorum inni í Laugardal. Það var hlaupið upp brekkuna sem maður fer upp frá Skautasvellinu og þar og upp á Laugarásveg og labbað niður tilbaka. Það er brekka sem ég hef aldrei verið mjög sátt út í því mér hefur gengið ógeðslega illa að komast upp hana nema að labba hana hálfa upp, aldrei getað skokkað alla leið eeenn... það tókst í dag, jibbísjibbí!! Komst alla leið upp án þess að stoppa og gerði það 4 sinnum. Ótrúlega glöð. Tók reyndar sinn toll í lokin þegar ég var farin að haltra aðeins. Þá var hnéskelin farin að stríða mér aðeins, alveg eins og hún sé laus á fætinum, óþægileg tilfinning og svo var ég farin að finna meiri óþægindi í ökklanum en venjulega. Þegar við vorum að rölta tilbaka út í Laugar missteig ég mig aðeins þannig að það var ekki betra fyrir ökklaskömmina og enda með því að vera slæm núna í kvöld og nótt, ARG!! Alveg ógeðslega pirrandi. Fríða Rún var sammála mér að ég ætti ekki að fara í sprettæfingar á mánudaginn eins og ég ætlaði mér. Ætlaði að koma galvösk loksins á Laugaskokksæfingu en óttast að það frestist aðeins, sorry:o/ Fer að koma... Ætla að prófa að synda meira og jafnvel hjóla aðeins í ræktinni. En var annars mjög ánægð með æfinguna í dag:)

Missi líklegast af næstu fjallgöngu sem er þann 18. október. Er að vinna þá:o( Farið verður á Móskarðshnjúk eða hvað þetta heitir. Verð á næturvaktahelgin og ekki hægt að skipta, snöökt:/

Úff á maður nokkuð að vera að minnast á þetta kreppudæmi. Æi, held ekki. Maður er orðinn hálfþunglyndur að hlusta og horfa á fréttirnar, ó god segi ég nú bara. Vona að þetta lagist someday.. hmm..

Best að fara að hætta þessu bulli í bili. Er komin með svo mikinn svefngalsa að það hálfa væri nóg. Það þýðir bara eitt og þýðir að ég þurfi að fara að gera eitthvað af viti.

Knús í krús og rosalega góða helgi, Moi sjálf

This page is powered by Blogger. Isn't yours?