Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

sunnudagur, ágúst 27, 2006

Það er komið kríli í heiminn:o) 

Vildi bara óska Gullu systur og Birni (og auðvitað Ingu Sól:) innilega til hamingju með litla sólargeislann sem var að líta dagsins ljós í nótt, klukkan rúmlega 4:00 :o)
Stór og stæltur strákur:) Innilega til hamingju elskurnar mínar enn og aftur. *KOSSAROGKNÚSÍBOTN*

föstudagur, ágúst 25, 2006

Vos öpp pípól;o) The big marathonner is speaking.... 

Nei hallóhalló allir. Bara svona láta vita í gamni að ég er enn á lífi mínir dyggu lesendur... hehe.. ;O)

Allavega, það er barasta allt fínt að frétta af mér síðan síðast sem var fyrir langalöngu.. hmm... Hverjum ætli það sé að kenna?;)
Ég er búin að vera að vinna og vinna, bara daglegt brauð, eins og allir sem þekkja mig er ég náttúrulega í 100 % vinnu og ekkert minna en það þó svo sem það væri fínt að minnka eitthvað við sig. Það gerist kannski einhvern tímann. Dæmigert að ég segi það milljón sinnum en láti aldrei verða af því. Maður veit aldrei;o)

Síðan í sumar fór ég í mitt fyrsta alvöru sumarfrí úr vinnunni, tæplega fimm vikur. Voðalega skrýtið því ég hef aldrei tekið neitt sumarfrí, bara verið í skóla og vinna á sumrin. Allavega, mjög skemmtileg tilbreyting. Ég verð að segja að ég gerði eiginlega mest lítið sem var svo sem alveg fínt, bara að slaka á.

Reyndar byrjaði ég svo sem að gera dálítið í fríinu. Ég af öllum gekk í skokkhóp (Laugaskokk) Þá hugsið þið með ykkur: "Jahérna hér, hún að hlaupa... hmm.." hehe.... segi svona. Það var verið að auglýsa á worldclass.is svona undirbúningshóp fyrir RVK- maraþonið og ég var einmitt búin að skrá mig í maraþonið og ákvað þess vegna barasta að skella mér;) Hljóp 3 sinnum í viku og lyfti niður í rækt 2 sinnum í viku. Mér leið eins og algjörum kjána eftir fyrstu hlaupaæfinguna, enda var ég orðin móð og másandi eftir nokkra metra, eldrauð í framan og komin með astmahósta og vesen eftir nokkra metra eða eitthvað svoleiðis og guð hvað ég skammaðist mín *ROÐNNIÐURÍTÁ* og það munaði bara litlu að ég færi ekki á aðra æfinguna en einhvern veginn drattaðist ég á hana sem betur fer, segi ég nú bara. Það hefur bara gengið vel hjá mér að hlaupa/skokka/labba. Skiptist á að skokka og labba (fyrir manneskju sem er í besta formi eins og mig, hehe... þetta kemur:) Ég keppti í mínu fyrsta hlaupi þann 8. júlí (Námsflokkahlaupið) og fór þá 10 km og KLÁRAÐI, JIBBÍ;) Fór á tímanum
1 klst., 30 mín., 07. sek. sem er bara nokkuð gott miðað við að ég hef aldrei hlaupið svona áður. Ég var við það að gefast upp í þessu hlaupi eftir ca. 3 km og ætlaði að snúa við en síðan hugsaði ég með mér hvað það væri hallærislegt að hætta og snúa við þannig að ég hélt áfram og hunskaðist til að klára... hehe...;o)
Síðan æfði ég af fullum krafti fyrir maraþonið og rann stóra stundin upp síðasta Laugardag (19. ágúst) Fengum alveg æðislegt veður sem spillti ekki fyrir;o) Mér gekk framar vonum og bætti mig um tæpar 7 mínútur hvorki meira né minna, ekkert smá glöð:o) 1 klst., 23 mín., 27 sek. í sæti 2057 af 23oo og eitthvað. Ekki svo sem slæmt hjá mér;)
Svo er ekkert annað á næstunni annað en að vinna og hlaupa. Mjög líklegast að fara að keppa í 10 km hlaupi á Selfossi 2. september (Brúarhlaupið)

Jæja, þetta er allt sem ég hef að tjá mig núna á þessari stundu þar sem ég er að iðka vinnu mína á Landspítalanum (Vá, hvað þetta var djúpt;o)

Allavega í bili..... Moi sjálf....

This page is powered by Blogger. Isn't yours?