Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

föstudagur, janúar 19, 2007

Dramatík dauðans... ...og dekur:o) 

Ji, hvað maður lenti í þvílíku í dag. Ég held ég hafi aldrei lent í svoleiðis sjokki áður, Ég var að keyra með vinkonu minni í dag og vorum að beygja af Kringlumýrabraut inn í Borgartún á grænu ljósi, þ.e.a.s. það var ekkert beygjljós. Svo kemur bíll á móti sem er á Kringlumýrabrautinni og ætlaði að beygja líka inn í Borgartún en í áttina að Sundlaugavegi. Kemur ekki bíll á móti honum, hinn var sko að bíða eftir því að komast yfir eða eitthvað svoleiðis (en ég held samt að hann hafi ætlað að verða yfir á undan), allavega kemur þessi bíll á móti og endaði með þeim afleiðingum að þeir skullu saman og þetta var ekkiert smá núningur eða neitt svoleiðis, algjört SPLASH! Bíllinn sem var að beygja lenti svo harkalega þvert á umferðarstaur að manni var barasta ekki sama. Ég var eitthvað að horfa í áttina að þessum bílum þegar þetta gerðist og guð hvað mér brá! Ég hef aldrei á ævi minni séð annað eins. Ég gleymi ekki þegar bílarnir skullu saman, hvernig sá sem sem var að beygja þeyttist inni i bílnum, því þetta var svo þungt högg. Hann var sem betur fer í bílbelti. Ég var alveg við vinkonu mína í þvílíku sjokki:"Sástu þetta, sástu þetta...?" Svo hringdi ég strax í neyðarlínuna og þaðan fékk ég samband við lögregluna og ég var svo titrandi og skjálfandi, bæði á líkama og sál þegar ég talaði við hann að ég hélt að hann myndi varla skilja mig. Svo hljóp ég til stráksins sem lenti á staurnum því það virtist ekkert vera að gerast hjá honum inn í bílnum (þetta var bara sjúkraliðinn sem kom bara alveg ósjálfrátt upp hjá mér..hehe..;o), hvort það væri ekki í lagi og svona og það var það sem betur fer og svo athugaði ég með hinn og hann var í lagi og þá var ég sátt. Svo biðum við bara eftir lögreglunni og svona og þeir spurðu okkur hvar við hefðum verið og hvort við hefðum séð eitthvað athugavert og svona, svo fórum við. Eins og ég segi hef ég aldrei á ævi minni lent í að sjá eitthvað svona gerast, það var sko ekki eins og þetta hefði verið smá nudd, þá hefði maður ekki gert svona mál úr því. Maður jafnaði sig nú eftir smátíma. Þetta var smá svona sjokk fyrst.

Svo fór mín í dekur í dag, guð hvað það var gott:O) Slakaði alveg ótrúlega vel á. Fór í Laugarspa í Laugum og það var algjört æði. Fór í svokallaðan detox vafning sem á að hreinsa eiturefni úr líkamanum og á víst líka að minnka ummál buxna, ekki verra;o) Byrjaði aðeins að fara í baðstofuna sem var bara yndislegt. Svo byrjaði vafningurinn á þvi að sú sem var með mig burstaði mig hátt og lágt með grófum bursta og bar síðan á mig eitthvað gróft salt og olíu, einhver svona blanda. Síðan sturtaði ég það af mér og síðan bar hún á mig eitthvað sjóðandi heitt efni sem ég átti að vera inni í vafningnum og síðan vafði hún mig inn í eitthvað álpappírsdæmi og setti fullt af handklæðum yfir mig. Þetta var barasta mjög notalegt... umhumm... Meðan ég var í vafningnum þá nuddaði hún höfuðið á mér og það var sko punkturinn yfir I-ið, alveg æði. Svo þegar hún var búin að því sofnaði ég örugglega í 20 mínútur með kertaljós og rólega tónlist, ahhh.... hvað það var yndislegt:o) Mæli svo með Laugarspa, algjörlega:o)

Jæja, ansi viðburðarríkur dagur að baki. Svo er æfing kl. 10:00 í fyrramálið, gangi mér vel að vakna svona á Laugardagsmorgni í fríi;o)

Kveðja, Moi sjálf
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?