Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

þriðjudagur, janúar 16, 2007

Kuldakast dauðans... 

Dísus, ég veit að ég er alveg geðveikt góð í að kvarta og kveina en kommon, þessi kuldi er alveg að dræva mig kreisí:o/
Allavega, þá fór ég á æfingu í dag og það gekk alveg allt í lagi held ég. Fór nú bara 4 km í þetta skiptið, enda var svo ÓGEÐSLEGA kalt að það hálfa væri nóg. Það var Brúnavegshringur að venju svona á mánudegi og þar eru sko brekkur dauðans og það er það versta sem ég veit þegar ég hleyp, að fara upp brekkur. Og merkilegt nokk, þá komst ég upp asskotans brekkurnar án þess að labba;o) Jibbí:O)
Svo þegar ég kom heim af æfingu, var ég að deyja úr kulda. Var að reyna að sofna því ég var að fara á næturvakt, en það gekk nú ekkert því ég var að deyja úr þvílíku kuldakasti, eftir að hafa verið úti í kuldanum og koma svo strax inn í hlýjuna. Það er alveg eins og ég hafi verið í eins konar kuldasjokki. Lá undir þykkri sæng og teppi og ég skjálfaði úr kulda.... aarrgg...
Jæja, læt þetta kvart og kvein duga í bili, öntil next tæm.... .
.......Moi sjálf....
P.S. Megið alveg kvitta í kommentum eða gestabók;O)
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?