Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

miðvikudagur, febrúar 21, 2007

Kemst þótt hægt fari:o) 

Jæja þá, mín mætti eldhress á æfingu í dag. Merkilegt hvað ég var hress því ég vann 16 tíma í nótt og gærkvöldi (kvöld-/næturvakt) Stelpan sem átti að vera í nótt var bara að verða lasin greyið þannig að hjúkkudúllurnar fengu mig til að vera áfram þannig að ég sleppti morgunvaktinni í morgun sem ég átti að vera á. Þetta var bara fínt, jájá:o)

Er orðin betri í kálfanum eftir að ég stífnaði þvílíkt upp á Mánudaginn. Þetta var sko ekki gott:o( Þá varð mín að grípa til örþrifaráða og hóf allsherjar verkja- og kælimeðferð a´la Sveinbjörg María;o) Kældi fyrst, setti síðan kæli- og verkjagelið og endaði á því að fara í teygjusokk og var í honum þangað til ég fór að sofa og svaf með hátt undir fótunum og svei mér þá að það gerði eitthvað gagn. Var allavega 1000x betri þegar ég vaknaði. Það var einn læknir á slysó (þegar ég fór síðast og fannst ekkert) sem sagði að þetta gæti verið vöðvaslit, var samt ekkert viss og svo einhver sem sagði að þetta gætu verið sinarnar eða eitthvað svoleiðis. Æji, ætla ekkert að væla meira um þetta. Meðan ég get gengið og sérstaklega hlaupið, þá er minni nokkuð nett sama:O)

Æfingin í dag gekk bara feikivel fyrir sig. Hélt að ég ætti að fara hálftímann sem er um 6 km en foringinn barasta lengdi æfinguna hjá mér og mín fór heila 10 km. Inn í Elliðarárdal og beygði svo í áttina að Fossvogsdal og fór að Víkingsheimilinu og tilbaka. Það verður bara að segjast eins og er að það gekk þrusuvel og þótt ég segi sjálf frá ;D Ég labbaði ekkert og það virðist vera kominn sá ávani að þurfa ekki að labba neitt. Skemmtilegur ávani ekki satt? Reyndar fer ég á mínu mjög svo HÆGA tempói, en þá er það spurningin um það fræga mottó: KEMST ÞÓTT HÆGT FARI! Það á bara nokkuð vel við mig haaa... :o) Er allavega mjög ánægð með hvernig gengur.

Hey já, eitt enn í lokin. Fór þarna í mælingarnar hjá Sölva á Mánudaginn og fékk niðurstöðurnar úr því og ég bara gapti bara. Hefði getað stokkið upp hæð mína af gleði. Þetta koma svona líka vel út. Búin að missa helling af sentimetrum; 4 cm hér og þar, 6 cm hér og þar og svo sem ég var stoltust af og það var mínus 11 cm af mittinu, jibbí! Svo var ég búin að missa 9.2 kg bara af FITU og bæta á mig 1.4 kg af vöðvum og léttast heilmikið frá því síðast:o) Er alveg í skýjunum yfir þessari mælingu bara:O)

Jæja, hætti loks þessu blaðri í bili. Löng æfing á morgun;o)

Kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir):
Til hamingju með mælinguna og skemmtilega ávanann! Glæsilegt hjá þér :) kv. Agga
 
Skrifa ummæli
1 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?