Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

laugardagur, febrúar 03, 2007

Úúps...;o) 

Ætlaði náttúrulega að láta vita hvernig síðasta æfing gekk fyrir sig sem ég fór á miðvikudag. Komst ekki á fimmtudag vegna þess að ég þurfti endilega að vera á kvöldvakt þá:o/ Allavega, þá er netið heima búið að vera að stríða mér þannig að ég hef ekkert getað látið vita hvernig gengur en ég bæti úr því í þetta skiptið. Er hérna í vinnunni og allt rólegt, SJÖ-9-ÞRETTÁN!!;O)

Æfingin sem var á miðvikudaginn (31. janúar nánar tiltekið;o) gekk alveg ótrúlega vel þótt ég segi sjálf frá. "Foringinn" ákvað að taka okkur nokkur úr hópnum og láta okkur taka spretti! ARG! ÉG að taka spretti, hjálp, kallið á björgunarsveit... hehe... Fórum svokallaða 600 metra spretti (600 metra hringur) sem eru inni í Laugardalnum. Þessi æfing var sú fyrsta sem ég fór á minni fyrstu hlaupaæfingu sem var fyrir rúmum 7 mánuðum síðan, VÁ! 7 mánuðir sem MOI hef hlaupið, geri aðrir betur;o) Eins og ég segi gekk þetta ótrúlega vel. Þessir hringur er þannig að maður sprettar upp í móti sem er by the way alveg ÓGEÐSLEGA erfitt, allavega fyrir manneskju eins og mig... ehehe... ;o) Svo er lullað smá spöl og svo er sprettað niður í móti og endað að lulla smáspöl. Og viti menn: Mín fór 5 hringi ÁN ÞESS AÐ LABBA!!! Já, þetta eru allavega MJÖG stórar fréttir fyrir mig því ég var alveg að deyja á minni allra fyrstu æfingu og þjálfarinn þurfti að labba með mér upp brekkuna og liggur við alla leiðina þannig að þetta er barasta bæting upp á 1000% myndi ég segja<",) :O) Eftir þessa hringi fórum við smá hlauparúnt inni í Grasagarðinum sem bara fínt. Reyndar kláruðum við fimmta hringinn eftir rúntinn inni í Grasagarðinum og það sýndi mér að ég get klárað hvað sem ég vil:O)

Jæja, svo er bara æfing á mánudag. Kv. Moi sjálf.
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?