Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

þriðjudagur, febrúar 27, 2007

Stutt og laggott 

Fór æfingu eftir mjög langa og stranga vinnuhelgi. Fór nú bara stutt í dag út af því að ég var að fara á næturvakt í nótt. Er að skrifa þetta úr vinnunni því tölvan mín heima ákvað án samráðs við mig að blokkera allar síður, þ.e. netið virðist vera alveg á fullu inni en það kemur alltaf: This page cannot be displayed. ARG!! Allavega eitthvað svoleiðis og þetta kom bara allt í einu. Var að vinna eitthvað í tölvunni þegar síðan dettur eitthvað út. Trúi nú samt ekki að þetta sé vírus eða neitt svoleiðis, búin að fá nóg af svoleiðis bulli:o/

Allavega, fór stutt í dag og svona. Fór smá upphitun inni í dal og fór einn Brúnaveg og svo endaði ég á að fara niður Sunnuveg og inn í dal og niður í Laugar. Þetta var bara fínt, sirka 6 km eða svo, ekki slæmt, ekki slæmt. Verð alltaf að monta mig eins og venjulega að mín þurfti ekkert að labba þannig þetta er allt að koma:O)

Svo er ég að pæla í því að taka löngu æfinguna sem átti að vera á fimmtudaginn á miðvikudaginn í staðinn. Neyðist að vera á kvöldvakt þá og svo ákvað ég einhvern veginn að skipta við eina og taka þá næturvakt í framhaldi af kvöldvaktinni, smá svona 16 klst;o) Nei, nei, þetta er í lagi. Fæ lengra helgarfrí í staðinn;o) Það er langtum skárra að vera kvöld/næturvakt heldur en að vera morgun/kvöldvakt. Maður getur þá allavega gert eitthvað smá hluta dagsins í staðinn fyrir ekki neitt.

Kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?