Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

miðvikudagur, mars 14, 2007

10 km po ðis dagen;o) 

Þetta var bara alveg fín æfing í dag þótt ég segi sjálf frá. Var samt svolítið treg í gang og svoleiðis en þetta kom svo eftir sirka 2-3 km. Eins og ég segi fór mín heila 10 km í dag og gekk bara mjög vel. Labbaði ekkert nema oggulítið upp 2 brekkur;o) Fór semsagt frá Laugum inn í Elliðarárdal og þaðan að Víkingsheimilinu og tilbaka. Það var reyndar talsverður vindur á leiðinni en var fínt tilbaka. Það er búið að vera afskaplega undarlegt veður í dag; allt autt og talsverð sól og síðan varð allt þvílíkt dimmt og snjókoma, jakk, jakk! Vona að þetta hret sem er búið að vera fari að hætta, er orðin geðveikt þreytt á þessu veðri, ARG!

Eftir hlaupó skelltum við Helga Eyja okkur á Salatbarinn og það var geðveikt. Það er bara æðislegur matur þarna og ótrúlegt alltaf úrvalið, milljón tegundir.

Svo er bara vinna og vinna og löng æfing á morgun, líklegast að Árbæjarstífunni

Kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?