Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

laugardagur, mars 03, 2007

You won´t believe this... :o) 

Kooomiði sæl og blessuð (Jón Ársæll og mjög dramatískt;o) Fór á æfingu kl. 09:30 í morgun og mín sem er ekki mjög mikill morgunhani í sér hafði það að vakna snemma, jibbí, húrra fyrir Sveinbjörgu:)

Það gekk bara geðveikt vel þótt ég af öllum segi sjálf frá;o) Vissi ekkert hvert ég átti að fara langt en stefnan var tekin niður í bæ þannig að ég bara fór náttúrlega af stað eins og allir hinir. Þegar ég var að fara niður Mýrargötuna hitti ég einn hlauparann sem sagði að foringinn ætlaði að snúa við á Ægissíðunni og mín ákvað að reyna að hitta á hann einhversstaðar. Það voru alveg frábærar aðstæður, allt autt og mjög gott og bjart veður. Gekk mjög vel, þurfti aldrei að labba nema að það voru tvær pínu brekkur á bakaleiðinni en það var allt og sumt. Svo fór það þannig að ég hitt aldrei á þjálfarann en ég hélt alltaf áfram og nennti eiginlega ekki að snúa við. Þegar ég kom aftur í Laugar þá var ég búin að hlaupa í hvorki meira né minna en 3 klst! Var svo heppin að hitta á vores foringja og sagði honum hvert ég hefði farið og hann reiknaði hve útkoman var í km sirka.... og þá kemur titillinn á blogginu inn í: You wont believe this but.. þetta voru hvorki meira né minna en rúmir 20 km, jábs, þið heyrðuð rétt, rúmir 20 km! Ætlaði varla að trúa þessu, hef mest hlaupið tæpa 12 km þannig að þetta er bæting upp á sirka 8 km, VÁ! Ég er svo hrikalega ánægð með þetta og hrikalega stolt af sjálfri mér og þá er nú mikið sagt þegar ÉG segi það.. hehe.. ;o)

Leiðin var um það bil svona: Laugalækur, Sæbrautin, Lækjargata, Mýrargata að JL-húsi inn að Seltjarnarnesi og fór allt Seltjarnarnesið meðfram sjólínunni að Gróttu og þaðan að Suðurströnd, svo Nesvegur, Ægisíðu, Lynghaga, Suðurgötu, Gömlu Hringbraut, Snorrabraut, Borgartún og Sundlaugaveginn og inn að Laugum.

Þá eru hlaup vikunnar um 36 km sem er persónulegt met, jibbí:O)

Jæja í bili frá hlaupagarpi dagsins;o)

Kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?