Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

miðvikudagur, apríl 18, 2007

Loksins... 

...ritar maður aftur eftir smá pásu.

Fór náttúrulega austur á laugardaginn til að "keppa" í Flóahlaupinu og til að fara pínu í sveitina í smá heimsókn. Ég var eitthvað búin að vera rosa yfirlýsingarglöð við sjálfa mig með hlaupið að ég ætlaði að bæta tímann og svoleiðis en það var ekki svo gott. Það var búið að spá kreisí veðri; rigningu og roki en það var nú samt sól sem var bara fínt en þetta heví rok. Svo var eitthvað búið að vera að tala um að við myndum byrja með mótvindinn og enda með meðvindinn okkur í hag en það varð bara öfugt miðað við hvað fólk var búið að vera að tala um. Allt eitthvað öfugsnúið.. hmm.. Allavega, þá var ég eitthvað svo treg í gang með fæturna að það hálfa væri miklu meira en nóg. Leggirnir voru alveg þvílíkt stífir og ég komst ekki alveg í gang fyrr en eftir 4 km og eftir það sirka fór vindurinn að færast mér í fang, ARG! Þetta var bara ekkert smávegis erfitt og ég er ekki að grínast með það að ég var alveg komin að því að gefast upp og ekki gerist það nú oft, þannig séð;o) En ljósi punkturinn er þó að ég KLÁRAÐI hlaupið og þó ég hafi ekki bætt tímann, var ég samt á akkúrat á sama tíma og í maraþoninu. Eftir hlaupið var boðið upp á þvílíkt kökuhlaðborð og ji, hvað þetta var girnilegt allt saman, umm.. jammí;o) Ég, Dísa og Erla ákváðum að skreppa pínu í sturtu til að skola af okkur mestu svita"drulluna" og svona, allt í lagi með það eeen... ji hvað þetta voru hallærislegustu sturtur ever, held að þær séu síðan sautjánhundruðogsúrkál. Það var varla rennsli í þeim og þar að auki var aðeins heitt vatn í einni sturtu af þremur. Þetta var nú frekar lúðalegt fannst mér. Svo brunaði ég í sveitina út á Hvolsvöll og var þar í nokkra daga, gott að komast pínu úr bænum. Tók svo smá æfingu í sveitinni og fór 7 km hring sem er þarna í kring og það gekk bara fínt.

Svo í dag, miðvikudag var bara æfing eins og venjulega. Gekk bara svona lala... hefði mátt ganga betur finnst mér. Mér eiginlega til vorkunnar var ég að prufuhlaupa nýju hlaupaskóna mína sem ég tek með í reikninginn. Áttum að fara Fossvoginn í dag en foringinn ákvað að breyta til. Ákvað að fara Sæbrautina og niður í bæ og upp Hverfisgötu og tilbaka eða að fara út Sæbrautina og tilbaka sem gerir að sirka 7-8 km. Ég ákvað seinni kostinn. Vá, hvað ég var eitthvað ósátt við mig á leiðinni, öll eitthvað stíf og að prufuhlaupa nýju skóna (alveg að drepast í iljunum) og í þvílíku roki by the way. Rokið var svo mikið að ég fékk næstum hálfan sjóinn yfir mig á leiðinni, frekar fyndið. Öskraði svona gelgjuöskri þegar ég fékk þvílíkan slurk af sjó yfir mig, frekar mikið fyndið myndi ég segja, but I survived. Eeen... enginn er verri þótt hann vökni, ekki satt?;o)
Svo er frí á morgun vegna ÍR-hlaupsins sem ég kemst ekki einu sinni í, þvílíkt svekkt:o/ Það er alltaf dæmigert að þegar að það er verið að gera eitthvað sniðugt þá er ég alltaf að VINNA! Æm not kidding, svona í 99.9% tilfella þegar eitthvað er að ske þá er mín að sjálfsögðu að vinna (held barsta að þetta séu örlög á mér að vera að vinna þegar eitthvað er í gangi:) en ég er að pæla samt að kíkja í sund eða eitthvað á morgun, vera pínu aktív;o)

Öntil ðí negst tæm, Moi sjálf
Athugasemd(ir):
Já, úff, þetta rok í Flóanum var svakalegt!
En, ertu frá Hvolsvelli?
Kv. agga
 
Sko, bjó þar í 9 ár áður en ég flutti í bæinn. Er úr Skaftafellssýslu þeirri vestri;o)

Kv. Sveinbjörg

P.s. er ekki í lagi þótt ég bæti þér á línklistann minn? Þú varst svo næs að setja mig á þinn lista:o)
 
Gelðilegt sumar:)
 
Já gleðilegt sumar Fanney mín og allir hinir:O)
Sveinbjörg
 
Júbb, endilega :) Gleðilegt sumar! kv. Agga
 
Skrifa ummæli
5 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?