Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

mánudagur, apríl 30, 2007

Monday 

Jæja, ætla bara að hafa þetta stutt og laggott í dag. Er nefnilega að fara á næturvakt á eftir.

Fór nú bara stutt á æfingunni áðan. Fór hálftímann í þessu æðisgengna veðri; sól og blíða. Hvað er eiginlega betra en að hlaupa úti í svona veðri? Ekki neitt held ég. Þarf ekki bara að vera að hlaupa, heldur bara það að fara í smá labbitúr, vera úti og njóta lífsins:o) Allavega, þetta gekk bara vel, hljóp nú ekkert á svaka tempói en ég fann ekkert þannig fyrir þreytu eftir nýju skóna þannig að þetta hlýtur að vera koma til;o)

Foringinn var heví ánægður með að ég kláraði 18 km æfinguna á fimmtudaginn og segir að ég geti sko farið að hlaupa hálft maraþon, ó mæ lord, ég af öllum! Er ekkert smá ánægð með þetta allt saman og það vill svo skemmtilega til að ég á 11 mánaða hlaupa"afmæli" á morgun, alveg ótrúlegt. Þannig að den förste of júní þá er komið ár, jahérna hér:o) Er sko búin að tönglast milljón sinnum ef þá ekki trilljón sinnum hvað þetta hefur verið ótrúlegt hlaupaár. Manneskja í mínu ástandi að voga sér að fara að hlaupa. Gat varla hlaupið fyrst, labbaði nánast helming leiðarinnar eða meira sem ég fór og gat varla talað af mæði og astma"drullu" Hafði varla þol til að labba sirka 10 mínútur niður í Laugar áður en sjálf æfingin byrjaði! Þá er það orðið nokkuð sorglegt, haa... Síðan eru liðnir "margir" mánuðir og slatti af kílóum og sentimetrum og Moi sjálf er farin að klára flestar æfingar án þess að blása varla úr nös, hlaupa allan tímann (að sjálfsögðu á hægu tempói, ennþá, en það kemur;o)

Svo er ég búin að skrá mig í Icelandair hlaup sem verður á fimmtudaginn. Þetta eru hvað, 7 km minnir mig. Aðeins að prófa mig áfram fyrir sumarið og reynslubankann:o)

Jæja, best að hætta þessu monti í bili og fara að leggja mig fyrir vinnuna.

Kær kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?