Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

fimmtudagur, maí 17, 2007

Rok dauðans 

Hvað er með þetta rok eiginlega? Það var alveg geðveikt rok í morgun þegar maður mætti á æfingu og það spillti því að maður ætlaði að taka langa og góða æfingu. Foringinn ákvað það að við færum bara eitthvað aðeins niðri í bæ. Þetta minnti pínulítið bara á Neshlaupið um síðustu helgi en var samt ekki eins slæmt og þar en þetta var samt enginn dans á rósum skal ég segja ykkur. Allavega, þá var farin Sæbrautin niður í bæ og upp Hverfisgötuna, Borgartúnið, Sundlaugavegurinn og í Laugar. Það gerir að sirka 8 km sem var bara ok svosem. Gekk bara fínt á leiðinni fyrir utan náttúrulega rokið, ekkert svo stíf í leggjununm og kálfunum. Hefði viljað að fara þessa 18 km sem ég ætlaði að fara en þetta heví rok skemmdi það allt saman, skammskamm rok;o) Þannig að þetta var bara ósköp róleg vika hjá mér í hlaupum, ekki nema 22 km en ég átti rosa góða viku í síðustu viku. Er ekki bara sniðugt að vera með hörkuæfingu aðra hverja viku og frekar rólega hina? Gæti verið ágæt taktík. Er nú ekki ósköp klár í þessu.

Svo er bara vinna og aftur vinna um helgina og æfing po mondey;o)

Kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?