Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

fimmtudagur, júní 07, 2007

18 km 

Gekk bara nokkuð vel í dag í svona já, nokkuð góðu veðri; ekki mikið rok og bara bjart yfir, svei mér þá að það hafi ekki kíkt smá sólarglæta á leiðinni á Moi sjálfa;o)

Fór semsagt 18 km í dag en ég ekki vanalegu leiðina inni í Elliðarárdalnum og Víðidal. Foringinn setti mér það fyrir í dag að fara inn að Sprengisandi og í Fossvoginn að Nauthólsvík og tilbaka sem gerir samkvæmt bókhaldi um 18 km. Ekki slæmt það, skemmtileg tilbreyting. Var að prófa á leiðinni að "sprengja" mig, svona til að æfa þolið. Gekk svona lala. Tók slatta af svona sprettum og var alveg búin á því eftir þá og tók smástund að jafna mig eftir þá. Mér fannst ég bara vera algjör auli í þessu, var frekar klunnalegt hjá mér, þyrfti að skipuleggja þetta betur hvernig sem ég fer að þvi en þetta hlýtur að koma, vona það allavega. Held líka að það hafi ekki gengið eins vel og ég vildi er að ég var ekki með drykkjarbeltið á mér því í lokin var ég orðin svo skraufþurr í hálsinum að ég var eins og fiskur þegar ég andaði og másandi eins og hundur þegar hann er þyrstur, frekar asnaleg sjón það. Enda drakk ég vatn eins og kreisí þegar ég kom heim. En það var rosa gaman að vera úti í svona veðri, bara yndislegt. Mætti alveg böns af fólki annaðhvort að hlaupa, hjóla eða labba úti með hundana sína, hitti meira að segja slatta af Laugaskokkurum í bakaleiðinni;o)

Alltaf að koma með spurningar út í eitt eeenn... ég er í svo geðveiku veseni með magann og lærin á mér, vitið þið eitthvað um sniðugar æfingar til að vinna á þeim? Er alveg heví pirruð á þessum "yndislegu" líkamspörtum. Þarf geðveikt að koma mér í heví form fyrir maraþonið;o)

Svo er vinna föstudags- og laugardagsnótt, skipti við eina í vinnunni. Átti að vera semsagt í helgarfríi, en þetta verður ókei. Fattaði reyndar ekki eitt, átti að vera á kvöldvakt á mánudagskvöld og skipti við aðra svo ég gæti farið á hlaupaæfingu en uppgötvaði svo að ég er á næturvakt á laugardagsnóttinni þannig að það verður bara svefndagur og svo morgunvakt. Ja, hef nú tæklað þær nokkrar svoleiðis þannig að sleppur örugglega;o)

Kv. Moi sjálf
P.s. Megið alveg kvitta, er svo forvitin (",)
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?