Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

miðvikudagur, júní 13, 2007

Elliðarárdalurinn 2dey 

Ætlaði að fara Fossvoginn en breytti á síðustu stundu þegar ég var að koma að Sprengisandi. Fór semsagt að Árbæjarstíflunni sem gerir að 11.5 km sem gekk svona lala. Vildi að það hefði gengið betur. Yndislegu leggirnir mínir voru alveg að fara með mig, stífnaði strax illa upp og komst varla áfram og varð að labba talsvert og ég fann að ég var einhvern veginn ekki nógu ánægð með sjálfa mig en skrattaðist þetta á skapinu held ég barasta. Kláraði allavega það sem ég ætlaði mér, jibbísjibbí:o)

Þetta er ekki mín besta vika verður að viðurkennast. Fór bara um 5 km á mánudag en það var samt geðveikt erfið æfing (brekkusprettir dauðans) sem ég hefði viljað að standa mig betur á (finnst mér) og svo fór ég þessa 11.5 í dag sem var bara OK en leggirnir voru að stríða mér og mér leið bara ekki vel. Þetta er bara allt uppi í hausnum á mér held ég. Þegar ég hef byrjað æfingarnar upp á síðkastið hef ég sprengt mig einn, tveir og tíu og tekið smástund að jafna mig og finnst þetta hafa klúðrast hjá mér. Æji, þetta er eitthvað frammistöðudæmi í hausnum á mér, finnst ég þurfa að standa mig eitthvað extraextra vel á hverri einustu æfingu sem er auðvitað gott en ég held ég fari eitthvað fram úr sjálfri mér. Verð alveg þvílíkt svekkt út í sjálfa mig að gera ekki betur (eins og t.d. að losna ekki við þessi lovlí læri og maga, Æ know, enn blaðrar hún um þetta drasl á sér, I´ll stop, I so promis:o)

Síðan eru blessaðir 18 km á morgun að venju á fimmtudegi og er að hugsa um að fara frekar inn í Elliðarárdal og Víðidal heldur en Nauthól eeenn ætla bara sjá til, það verður annaðhvort:O) Svo er mín komin í sumarfrí næsta mánudag og fer þá í fjórar vikur í frí;o)

Kær kv. Moi sjálf/Mæ self
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?