Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

fimmtudagur, júní 14, 2007

Elliðarárdalurinn aftur var það heillin 

Það varð úr hjá mér að fara Elliðarárdalinn í dag. Ætli ég skiptist bara ekki á að fara Nauthólinn og Elliðarárdalinn, það gæti orðið bara sniðugt.

Var bara nokkuð ánægð með sjálfa mig í dag, allavega miðað við síðustu tvær æfingar. Fór semsagt Elliðarárdalinn og upp í Víðidal sem gerir samkvæmt bókhaldi um 18 km. Var í fríi í dag þannig að ég nýtti tímann vel og fór út korter yfir tvö að hlaupa og í þessu rosa góða veðri. Það var skýjað með sólarglætu hér og þar með smá golu, þetta var bara heví góðar aðstæður sem ég fékk. Dúllaði mér bara alla leiðina og leið nokkuð vel. Var reyndar svolítið lengi í gang og hefur oft verið, vont en það venst. Þetta gengur fínt þegar maður er komin yfir versta byrjunarhjallann;o)
Leggirnir mínir voru að stríða mér til að byrja með en löguðust síðan en það sem pirraði mig eiginlega mest var hællinn og ilin á hægri fæti. Gæti alveg trúað því að það sé vegna þess að ég er ekki með innlegg í skónum. Er með skakka hæla og eitthvað vesen en skórnir sem ég hleyp í núna eru hálfu númeri of litlir en þeir sem ég var í á undan (keypti óvart hálfu númeri minna, úps;o) þannig að innleggin komast ekki í þau. Er að hugsa um að prófa innlegg sem fást í apóteki sem eru með geli eða einhverju svoleiðis í, ætla allavega að tékka á þessu. En óverol gekk þetta fínt og mér leið vel þegar ég komst vel í gang og ekki skemmdi veðrið fyrir:o)

Svo er bara vinna um helgina og sumarfrí eftir það, jibbíjei:o) Er að hugsa um að hvíla mig um helgina og æfa ekkert fyrr en á mánudag samkvæmt ráði frá Hildi;o)

Kær kv. Moi sjálf/Mæ self
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?