Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

laugardagur, júní 02, 2007

Heilsuhlaup Laugaskokks og Landsbankans 

Vildi byrja á því að þakka fyrir allar kveðjurnar út af hlaupaafmælinu mikla, eru mér mikils virði svo RISASTÓRT TAKK:O) Er ennþá alveg í skýjunum yfir þessu öllu saman.

Jebs, skellti mér í Laugaskokkshlaupið í morgun og það var bara heví gaman fyrir utan þetta and******* rok og rigningu, kommon, er svona veður alltaf að fylgja mér þegar ég er að fara að "keppa"? Svona án gríns, þetta var svona í Neshlaupinu og svo núna. Ætli það verði bara ekki svona líka næst, allt er þegar þrennt er haa... ;o) En þetta var rosa gaman þrátt fyrir veðrið og gaman að hópurinn okkar verði með svona árlegt hlaup. Það hefði getað gengið betur hjá mér að hlaupa en tíminn var svosem ekkert hræðilegur miðað við veðrið, var 22 sekúndum lakari tíma heldur en síðast í Flóahlaupinu, semsagt 1:25:52. Komst svo seint í gang í morgun, byrjaði á því að fá versta hlaupasting sem ég hef á ævinni minn fengið, alveg ógeðslega vondur og síðan bætti ekki úr skák að elsku leggirnir mínir ákváðu að stífna þvílíkt upp að ég komst varla úr sporunum. Reyndi að harka eins lengi af mér án þess að þurfa að labba en svo varð ég að gefa eftir í smástund. Það var eftir 4 km sem mér fór að ganga betur og þetta var allt miklu skárra. Það var svo yndislegt að koma í mark (eins og venjulega náttúrulega), það biðu þvílíkt margir eftir mér og ein sem hljóp með mér síðasta spölinn og mín tók smá sprett í lokin, heví dugleg bara;o) Svo knúsuðu allir mig og kysstu, þvílíkt yndislegt fólk sem maður er með í félagsskap. Mér var síðan tilkynnt að ég hefði verið dregin úr potti og fengið gjafabréf fyrir tvo í baðstofuna:o) Ég meina, halló.... Moi sem vinnur aldrei neitt, án gríns!! Þetta gat ekki verið betri dagur, er ofsalega ánægð. Segi bara takk fyrir hlaupið allir, þetta var sko allt til fyrirmyndar (enda besti hópurinn sem sá um hlaupið;o), bara algjört æði:O)

Svo er bara vinna á morgun og að sjálfsögðu æfing á mánudag.

Kær kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?