Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

mánudagur, júní 18, 2007

Komin í sumarfrí 

Mín ákvað að fara snemma út í dag af því ég ætla ekki á æfingu í dag. Ógeðslega góð að segjast ekki ætla á æfingu í dag.. hmm.. Æji, er búin að vera geðveikt slöpp um helgina, hálskirtlarnir komnir upp í haus liggur við og deyja úr hausverk en bara öðru megin, frekar asnalegt og þokkalega ekki þægilegt:o/ Var semsagt að vinna helgina þrátt fyrir þetta vesen, hefði átt kannski að taka veikindafrí en harkaði þetta af mér og núna er ég komin í sumarfrí, jibbísjibbí:o)
Þá er bara að fara að æfa og æfa og æfa.... Þarf að búa mér til gott plan og vera geðveikt reddý fyrir 18. ágúst:o)

Annars fór ég pínu út að hlaupa í morgun og gekk bara allt í lagi. Fann að hálskirtlarnir mínir yndislegu voru að mótmæla mér slatta þannig að ég dúllaði mér bara. Tók bara sirka 5 km. Prófaði líka pínu spretti á malarplaninu hjá gangstígnum á Suðurlandsbraut sem liggur niður að Laugardalnum. Ég spretti upp nokkrum sinnum þar til ég fann að hálsinn var að mótmæla mér. Fæturnir voru í nokkuð góðu standi núna miðað við síðustu viku sem er gott mál. Þarf bara að vera dugleg að bera verkjagelið á þá fyrir æfingar.

Hef eiginlega ekkert meira að segja á þessari stundu en reyndar er ég að hugsa um að kíkja í Jónsmessuhlaupið næstu helgi og skella mér í 10 kvikindi;o)

Kær kv. Moi sjálf/Mæ self
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?