Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

laugardagur, júlí 28, 2007

Elliðarárdalurinn 

~ 20 DAGAR Í 1/2 MARAÞON ~

Fór í Elliðarárdalinn í morgun og tók 18 km. Var eiginlega ekki að nenna því en fór á endanum. Átti svo erfitt með að vakna þannig að ég fór ekki klukkan hálftíu niður í Laugar eins og ég ætlaði mér. Náði að fara á fætur loksins um klukkan tíu og fór stuttu síðar út að hlaupa. Gekk bara alveg ágætlega, dálítið illt í leggjunum og hælnum til að byrja með, sirka fyrstu tvo til þrjá km en var síðan ok. Alveg rosa gott veður en dálítill vindur.

Svo fór ég loksins og keypti mér annað par af hlaupaskóm eins og mér var bent á að gera og ætla ég að stefna að því að hlaupa í þeim í maraþoninu þannig að ég verð að byrja að hlaupa þá til. Prófaði að kaupa Mizuno (Nirvana týpu) skó til að bera þá saman við Asics skóna. Sá sem göngugreindi mig sagði að þessir tveir væru bæði bestu týpurnar en það væri sniðugt að bera þær saman. Eina sem hann vildi að ég gerði væri að ég fengi innanfótastyrkta skó. Hey já Laugaskokkarar, keypti þessa skó hjá Sportlandi í Ármúlanum og þar fékk ég 20% afslátt, tæpan 4000 kall í afslátt, ekkert smá góður díll. Mikið verður nú foringinn ánægður með mig.. hehe.. hann nefnilega ELSKAR Mizuno skó, dásamar þá alveg í hástert;o)

Er eitthvað að reyna að stúdera einhverja taktík í RVK-maraþoninu. Las einhversstaðar að það ætti bara að kolvetnishlaða sig fyrir heilt maraþon eða stærri hlaup þannig að maður gerir það ekki, nema kannski að borða pasta kvöldinu fyrir hlaup;o) Spurning hvort maður eigi að vera með einhver gel eða eitthvað á sér í hlaupinu. Býst við að ég verði bara með powerrade og vatn, kann ekkert á þetta ennþá, en þetta hlýtur að koma.

Allavega, er að fara á næturvakt í nótt og þá næstu líka þannig að það verður stuð á æfingunni á mánudag, let´s hope so;o)

Kær kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir):
Hæ skvís, borðaðu bara pasta eða e-ð létt kvöldinu áður og ristað brauð og kannski banana um morguninn fyrir hlaupið. Algjör óþarfi að vera með gel í 1/2 maraþoni held ég allavegana.
kv.Hildur
 
Það er ábyggilega rétt hjá þér, er bara svo hrædd um að verða svo svöng í hlaupinu, er svo gjörn á að lenda í sykurfalli..
 
Skrifa ummæli
2 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?