Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

mánudagur, júlí 30, 2007

Úff, það voru sko sprettir á matseðli dagsins.. 

~ 18 DAGAR Í 1/2 MARAÞON ~

Þetta var bara ansi erfið æfing í dag og það var sko boðið upp á spretti í dag. Prófaði að hlaupa í Mizuno skónum svona í fyrsta sinn og með innleggjunum aftur. Þeir komu bara svona vel út fannst mér, fann eitthvað til en það var svosem ekkert að há mér neitt. Virka aðeins stærri og pínu þyngri heldur en Asics Kayano en þeir voru ekkert slæmir þrátt fyrir það. Er bara nokkuð bjartsýn með þá.

Allavega, byrjuðum á sirka 2.5 km upphitun upp Reykjaveginn og síðan Suðurlandsbrautina og niður í dal. Var mjög þreytt eftir það því ég sprengdi mig mjög snemma og svei mér þá að þessi ljóti áreynsluastmi sé að fara að byrja að kræla á sér hjá mér aftur sem ég er sko ekki ánægð með. Var eitthvað svo ómöguleg en ég púlaði mig samt áfram þótt þetta væri óþægilegt. Tók 3 sinnum 600 metra spretti og hálfan að auki og síðan einn sprett upp gras og það var ekki gaman, ó mæ lord, ég var eins og hölt kind sem kjagaðist asnalega og alveg gjörsamlega búin á því. Að endingu var sirka 1.5 km niðurhlaup og samkvæmt bókhaldi eða réttara sagt elsku Garminum mínum góða voru þetta 6.4 km. Var líka eitthvað hálfómöguleg út af því að ég var á næturvakt í nótt og vaknaði rétt fyrir æfinguna og fékk mér ekkert að borða og það er barasta ekkert mjög sniðugt að hlaupa með tóman maga, mæli alls ekki með því;o) Var líka bara ágæt í leggjunum, voru ekkert að stríða mér mikið.

Var bara nokkuð ánægð með mig þrátt fyrir þetta (áreynslu)astmadót sem ég er svolítið svekkt með:o/ Það er alveg spurning að ég fái mér bara púst fyrir maraþonið og fyrirbyggja að ég verði eitthvað verri. Það er langt síðan ég hef verið svona slæm. Þurfti að taka langan anda til að ná öðrum anda, svolítið ansnalegt og kurraði aðeins í mér, fékk svo geðveikan verk í kjálkann og tennurnar sem ég fékk alltaf þegar ég var virkilega slæm. Það er svolítið skrýtið að þetta skuli koma allt í einu því ég er búin að losna við að nota púst og vesen í nokkur ár. Þetta skal nú samt sko ekki stoppa mig, kemur ekki til mála;o)

Fékk e-mail frá einni konu sem sér eitthvað um skráningar og svoleiðis fyrir maraþonið og núna var hún loksins að klára að breyta fyrir mig vegalengdinni þannig að nú er mín skráð formlega í 1/2 maraþon en ekki 10 km:o) Þurfti að borga 700 kr í viðbót það sem ég var búin að borga upphaflega fyrir 10 km. Ef ég hefði beðið fram yfir 1. ágúst hefði ég þurft að borga meira. Sendi henni e-mail í lok maí og þá talaði hún um að það kæmi einhver "mín síða" á marathon.is þar sem maður gat breytt ýmsu eins og vegalengd, bolastærð og fleiru og átti þessi síða að vera komin í lok júní en hún var ekki komin upp um daginn og þá ákvað ég að e-maila aftur upp á að sleppa því að borga aukalega;o) Það var víst eitthvað vesen að setja þetta dæmi upp á síðunni.

Svo er bara æfing á miðvikudag þar sem ég býst við að fara 10 km, grunar það allavega.

Kær kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?