Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

fimmtudagur, júlí 19, 2007

Öfugur Fossvogur 

Mætti bara nokkuð hress á æfingu eftir næturvaktina síðustu nótt. Ákvað að fara öfugan Fossvog núna eða að fara einn "homma" eins og foringinn orðar stundum skondið með Brúnaveginn;o), aðeins að breyta til og svoleiðis sem var bara mjög fínt. Samkvæmt bókhaldinu, þ.e. Garminum mínum tók ég ein 10.3 kvikindi og er bara sátt við það.

Byrjaði allt uppi í móti eiginlega, fór upp Múlana og þar meðfram, út á Háaleitisbraut. Prófaði að spretta úr spori til að vinna aðeins upp fyrir brekkusprettina á mánudaginn. Gekk bara ágætlega. Svo þegar ég var að fara niður Háleitisbrautina spretti ég eins og brjálæðingur á sirka 4-5 mínútna tempói, sprengdi mig gjörsamlega. Hafði nú bara gott af því held ég en var svolítið þreytt og þyrst síðustu km. Finn núna talsvert fyrir astmaveseni þegar ég er á æfingu, spurning um að redda mér pústi fyrir maraþonið svo maður verði nú á lífi allt hlaupið;o)

Hitti á foringjann í Laugum og játaði syndir mínar með að hafa ekki farið 18 km á fimmtudaginn en sagði náttúrulega að ég hefði reynt við Úlfarsfellið og hann var bara heví ánægður með mig og þá var ég bara heví ánægð, jibbísjibbí;o) Hann var líka sérstaklega ánægður með brekkusprettina mína sem ég náði að skokka ágætlega upp brekkuna og hljóp eins og "klikkhaus" niður brekkuna.

Var að uppgötva það í dag að það er akkúrat mánuður í stóra daginn, the big 1/2 marathon. Fékk smá kvíðahnút í magann en ætla að reyna sleppa honum því ég ætla að klára hlapið þótt það verði mitt síðasta, þótt sko ég muni skríða allan leiðina og komast þannig í mark, þá það en ég ætla að klára!

Prógrammið verður bara svipað að sögn foringjans, geri bara það sem ég hef verið að gera síðustu vikur; sprettir á mánudögum, 10 kvikindi á miðvikudögum og önnur 18 á fimmtudögum og eitthvað smotterí á laugardögum. Þetta hefur bara gengið vel þótt ég segi sjálf frá.

Svo ætla ég að reyna að tækla 18 km á morgun, foringinn vildi það helst þannig að ég geri það, kemst ekki á æfingu, neyðist til að vera á kvöldvakt, arg:o/

Kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir):
Þú ert svo dugleg. Hef enga trú á öðru en að þú klárir hálfa maraþonið..
kv.Hildur
 
Hæ Sveinbjörg mín :) Þú ert SVOOOO dugleg og ég er GEÐVEIKT stolt af þér :oD Vildi óska að ég væri svona hrikalega dugleg eins og þú... Þú ert ÆÐI ;) ég trúi því að maraþonið verði GEÐVEIKUR sigur fyrir þig og að þú klárir það á góðum tíma ;) Farðu vel með þig krúsin mín
kv. Bergdís Mjöll
 
Skrifa ummæli
2 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?