Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

fimmtudagur, ágúst 09, 2007

Díí hvað ég sökkaði feitt.. 

~ 8 DAGAR Í 1/2 MARAÞON ~
(+ eða - nokkrir klukkutímar... Dadaraa... ;O)


..og er sko ekki að djóka. Fórum semsagt maraþonhringinn. Þegar við hittumst í Laugum var alveg grenjandi rigning, svo mikil rigning að niðurföllin hjá mótum Sundlaugavegs og Reykjavegs stífluðust og það var komið smá haf og bíllinn minn sæti þurfti að "kafa" pínu á leiðinni.

Fórum af stað hringinn frá Glitnishúsinu á Lækjargötu kl. 18:00 á slaginu eða næstum því;o) Ég bara um leið og foringinn sagði af stað þá spratt ég af stað og var meira að segja á sirka 6 mínútna tempói á tímabili, veit ekki alveg hvað ég var að hugsa. Svo var ég á 7-8 mínútna tempói í einhvern tíma og svo hægðist bara meira og meira á mér. Var bara eitthvað svo ómöguleg, ekki alveg að skilja þetta. Þegar ég hljóp sem hægast þá var ég á rúmum 9 mínútum og síðan svindlaði ég slatti sinnum og labbaði en ég reyndi samt að labba pínu og komast strax á skrið aftur en það dugði á köflum ekki lengi og þá sérstaklega síðustu fimm km.

Var talsvert móð og másandi eins og hundur á leiðinni (en samt ekki alveg allan tímann) sem pirraði mig pínu. Var bara fín í leggjunum fyrir utan fyrstu sirka tvo km. Það sem kannski var að hrjá mig aðallega mest var að ég var svo þyrst og svöng. Fór beint út að hlaupa eftir að ég vaknaði sem var sko ekki sniðugt og var bara rosa þreytt eitthvað.

Foringinn var svo góður að nenna að bíða eftir mér með reyndar einni sem fékk far með mér. Greyjið hún að þurfa að bíða eftir mér:o/ Þegar ég var að klára benti ég með þumlana niður og var geðveikt svekkt og fúl hvernig mér gekk. Hann sagðist hafa keyrt tvisvar framhjá mér á leiðinni og sá bara á mér að ég væri alveg rosalega þreytt og hefði verið næstum búin á því sem er sko þokkalega true. Líklegast ofæfingar sem mér finnst svolítið skrýtið fyrir utan síðustu viku sem kannski var bara ágæt. Svo er spurning með brekkusprettina á mánudag, þeir hafa tekið sinn toll af mér í vikunni og svo líka frekar strembin vinnuvika og svo á mín líka eftir að vinna helgina:o/ Þannig að foringinn sagði að núna ætti mín að hvíla og hvíla fram að hlaupi, allamalla. Mér finnst það bara svolítið svakalegt að gera nánast ekki neitt. Fer náttúrulega á æfingu á laugardaginn en það verður bara nett og lítil æfing, svona sirka 6 - 10 km. Svo ákvað að ég spyrja foringjann líka um hvort ég ætti að vera með gel á mér í hlaupinu og hann var alveg á því pottþétt og svo verður náttúrulega drykkjabeltið með líka, með vatni og jafnvel smá slettu af powerrade. En hann ætlaði að fara betur yfir þetta þegar nær dregur. En ég er sannfærð um að ég eigi eftir að klára þetta verkefni og foringinn líka, hann sagði að það væri engin spurning, núna væri crusual (eða hvernig sem þetta er skrifað:o) að hvíla vel fyrir hlaupið.

Jeminn, verð nú að hætta þessari munnræpu, þarf að fara að vinna aftur í nótt og hef ekkert getað sofnað þannig að ég tækla rapportið með tveimur magic-um í stað eins venjulega, wish me luck;o) Svo er svefndagur á morgun og ætla að reyna sofa eins lengi og ég get eftir vaktina. Vinna fram á mánudag og svo fæ ég bara vikufrí í kringum maraþonið, alveg geðveikt:o)

Kær kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir):
Elsku dúllan mín, manstu hlaupið í fyrra?? Þú tókst það í nefið og bættir þig þvílíkt, það verður eins í ár, ég er viss um það.
kv.Hildur
 
Þú átt eftir að standa þig vel á laugardaginn ;)
 
Skrifa ummæli
2 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?