Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

miðvikudagur, ágúst 01, 2007

Det var Fossvogur túdey 

~ 16 DAGAR Í 1/2 MARAÞON ~

Jebs, jú hörd mí, það var "sólaður og svolítið heitur vindur" on Fossvogurinn á matseðli dagsins í dag og algjörlega rústuð 10.1 kvikindi að þessu sinni eða næstum því "rústuð".. hehe.. ;o) Gekk bara svona ágætlega í heildina séð. Þetta var í annað skiptið sem ég hleyp í Mizuno skónum mínum og ég er bara mjög ánægð með þá. Finnst hællinn á þeim vera nokkuð þyngri heldur en Asics skórnir en mér finnst það ekkert geðveikt óþægilegt. Þarf bara að venjast þeim betur. Fann bara aðeins til fyrstu sirka tvo km en bara ok eftir það.

Ég reyndar viðurkenni hér með að ég hljóp ekki stanslaust allan tímann, labbaði og hljóp til skiptis. Það sem kom mér líka á óvart þegar ég hljóp var ég á miklu hraðari tempó en það sem ég er á venjulega. Er náttúrulega á ekkert æðislegum hraða, er að dúllast á rúmlega 9 mínútna tempói og í dag þegar ég hljóp á milli þess að labba var ég á um 7 - 8 mínútna tempói sem kom mér virkilega á óvart því ég átti þannig séð ekki erfitt með það, var einhver másandi astmadrusla í mér á tímabili en ég andaði bara þannig að mér liði betur. Læt svona sko ekki stoppa mig, no nada og hana nú;O) Leggirnir voru svona lala, fann reyndar fyrir smá óþægindum á tímabili en það reddaðist nú bara á hörkunni, jeje.. ;o) Eins og ég segi fór ég some 10.1 km og fór af stað að heiman og þegar ég var að fara niður Múlana vantaði mig alveg 1.3 km upp á, þannig í stað þess að fara beint niður að Höllinni og þar, fór ég upp Suðurlandsbrautina og niður allan Reykjaveginn og náði að klára þannig verkefni dagsins:o) Vá, langloka, úffpúffdúff.

Allavega, þá eru 18 km stefnan á morgun og aðeins styttra á laugardaginn. Hitti á foringjann og hann sagði að eftir þessa viku ætti ég að fara að trappa vegalengdirnar smám saman niður fyrir the big day 18. ágúst þannig að maður verður sko að klára þessa viku með stæl, ó je:o)

Kær kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir):
Dugleg dugleg er kannski dugleg millinafnið þitt?? Sjáumst í dag.
kv.Hildur
 
Skrifa ummæli
1 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?