Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

fimmtudagur, ágúst 02, 2007

Elliðarárdalurinn 

~ 15 DAGAR Í 1/2 MARAÞON ~
(...og styttist allverulega;o)

Þá var það síðasta langa æfingin fyrir maraþonið og núna styttast æfingarnar aðeins. Skellti mér í Elliðárdalinn eftir vinnu og tók eina 18 km. Fór klukkutíma fyrr en æfingin átti að vera, svona af því að ég er alveg geðveikt lengi með þessa vegalengd og þá er nú gott að nota mottóið sitt: Kemst þótt hægt fari. Hey og já, sá einhvern gaur þegar ég var á Sprengisandinum í gær í peysu með mottóinu "mínu" á bakinu. Ég hugsaði með mér hvurslags "hermikráka" þetta væri, hehe.. Ég þykist geta eignað mér eitthvað mottó, ein sem er svolítið góð með sig;o) Langar að gera eitthvað kreisí fyrir maraþonið oog fá mér bol eða peysu og láta merkja mottóinu "mínu". Ne, segi svona. Maður veit aldrei hvað gerist;o)

Þetta gekk bara fínt í dag. Þriðja æfingin á Mizuno-unum og gekk bara vel. Eins og við mátti búast voru svolitlir þreytuverkir í iljunum og hælnum til að byrja með en var bara síðan ok. Leggirnir voru líka bara nokkuð þægir við mig. Fór bara á mjög hægu tempói (tók reyndar ekki Garminn góða með því að hann var tómur greyið og þurfti að hlaða hann:o) Var bara nokkuð ánægð með sjálfa mig í svona líka góðu veðri. Búin að vera hangandi í vinnunni í allan morgun og við vorum föst við galopinn glugga og láta okkur dreyma um að komast út. Úff, loftræstingin er sko ekki góð á þessu sjúkkrahúsen:o/

Dí, þegar ég var að hlaupa Fossvoginn í gær mætti ég erkifjendum mínum út um allt, þ.e. randaflugum eða hvað sem þetta ógó kallast og einum og einum geitung. Sumt af þessu ógó var næstum búið að fljúga á mig og "ráðast" á mig að mér fannst. Æpti eins og smástelpa þegar þetta var rosa nálægt mér og gæsahúðin, jakkjakk, allamalla:o/

Svo er æfing á laugardaginn sem verður styttri en venjulega á laugardögum. Ætli það verði ekki sirka 10-13 km? Kemur í ljós;o)

Kær kv. Moi sjálf

P.s. Það var bara
14 mánaða hlaupaafmæli hjá minni í gær, jedúddamía:o) Voða merkilegt eða þannig;o)
Athugasemd(ir):
Dugleg ertu búin að vera! Þú átt eftir að standa þig vel þann 18.
 
Bara að kvitta fyrir kíkið, þú ert ótrúlega dugleg. Mundu bara að flugurnar eru eflaust hræddari við þig en þú við þær og láttu þær bara eiga sig og þá er allt í lagi :o) Kv. Hildur randafluga
 
Skrifa ummæli
2 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?