Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

laugardagur, ágúst 11, 2007

Frekar stutt í dag... 

~ 6 DAGAR Í 1/2 MARAÞON ~
(TRALLALALALA, smá stress.... ;O)

Skrifa núna úr vinnunni, netið heima ákvað að fara í verkfall við lítinn fögnuð hjá minni, argagarg:o/

Þetta var nú ekkert mjög langt í dag hjá mér samkvæmt elsku Garminum mínum eða 6.57 km. Fór Sæbrautina niður í bæ og svo upp Hverfisgötuna, Borgartúnið, Sundlaugaveg og niður í Laugar. Gekk bara svona lala, allavega skárra en á fimmtudag. Verð nú að játa syndir mínar og viðurkenna að ég labbaði og hljóp slatta bara til skiptis. Reyndi að vera rólegri á því til að byrja með en hausinn á mér er eitthvað fastur á því að fara hratt af stað og ætli þetta verði ekki verkefni mitt núna síðustu vikuna for the verý big day;o) Leggirnir voru ágætir eftir sirka 2 km eða svo.

Annars var þetta bara fín æfing í rosa góðu veðri, þessi þvílíka sól og hiti, bara vá miðað við rigningu dauðans á fimmtudag, ó mæ lord. Það var reyndar rosa skrýtið að þegar ég dró gardínurnar var þvílík þoka yfir öllu, hef nú aldrei séð annað eins liggur við. Engin rigning og bara stilla yfir öllu, verð nú að viðurkenna að þetta var nú bara pínu rómó:o)

Annars er bara að taka því þokkalega rólega fram að maraþoni. Tek pínu æfingar og jafnvel bara smá í sund og svoleiðis. Ætla að kaupa nokkur gel og prófa að fara með eitt út að hlaupa fyrir hlaup því þetta fer víst svo misjafnlega í magann á fólki þannig að ég ætla að testa einn áður til öryggis;o)

Jæja, læt þetta mas duga í dag. Svo er bara æfing á mánudag, örugglega frekar stutt.

Kær kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?