Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

mánudagur, ágúst 13, 2007

Guggnaði á sprettunum... ARG! 

~ 4 DAGAR Í 1/2 MARAÞON ~
(Anda inn... anda út.... ahh...)


Var sko ekki að standa mig í dag í þessu þvílíkt góða veðri, það var bara gjörsamlega geggjað veður og sólin, vó bara segi ég:o) Það voru brekkusprettir á matseðli dagsins en gungan ég guggnaði hræðilega á sprettunum og hélt áfram og fór bara hálftímahringinn sem gerir bara að 5.6 km:o/ Var óttalega asnaleg eitthvað strax frá byrjun, leggirnir stífnuðu illa upp strax og voru eitthvað að stríða mér fram að km nr 2.5. Síðan var astminn að kræla á sér enn og aftur og var það slæmur að ég fékk rosalegan verk í kjálkann og tennurnar og þá er ég ansi mikið slæm. Annars var algjört æði að hreyfa sig í svona æðislegu veðri:o)

Er farin að hugsa rosalega mikið um laugardaginn a.k.a. the big day of my life. Eftir æfinguna í dag er ég búin að ákveða að hringja í lækninn minn á morgun og athuga hvort það sé ekki sniðugast að fá púst fyrir hlaupið svo ég verði ekki að deyja og verði eins og móður hundur, það er ekki alveg það kynþokkafyllsta sem hægt er að vera á hlaupum... hehe... sæi mig nú samt í anda;o) Ætla líka að kíkja á útsöluna hjá Daníel Smára í Afreksvörum og skoða gelmál og jafnvel einn topp og hver veit hvað annað;o) Svo ætla ég líka að fara með flottu hlaupapeysuna mína og láta merkja hana mottóinu mínu sem er einmitt hluti af nafninu á blogginu;o) Það verður bara busy dagur, ó mæ lord. Þá gleymi ég kannski stressinu mínu fyrir laugardaginn. Er búin að vera með geðveikan stresshnút í maganum að vera að hugsa um the big day. Skil ekki af hverju ég er svona stressuð, þetta er bara eitthvað ósjálfrátt í hausnum á mér:o/ Eina sem ég verð að passa mig er að: FARA EKKI OF HRATT AF STAÐ SVEINBJÖRG MARÍA, DO YOU GET IT?! Hehe.. Þetta er svona aðalhausverkurinn með hinu. Ætli þessi vesen í mér sé bara ekki fall er fararheill? I sure hope so:o)

Svo verðum við að sjálfsögðu með pastaveisluna á föstudaginn í höllinni og eftir hlaupið á laugardaginn ætlum við að fara út að borða á Madonnu á Rauðarárstíg, það verður óskaplega næs:o)

Æfing next po miðvikudagen gudd pípol;o)

Kær kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir):
Hæ ég er líka orðin spennt fyrir laugardeginum, veit ekki hvaða stress er gangi??Gott að vita að ég er ekki sú eina með hnút í maganum..
kv.Hildur
 
Skrifa ummæli
1 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?