Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

mánudagur, ágúst 27, 2007

Lasarus:o( 

Vildi rétt láta vita af mér:o) Er að drífa mig að skrifa nokkrar línur áður en ég fer úr vinnunni. Ætlaði að koma alveg þvílíkt galvösk á æfingu í dag en veit svei mér þá ekki hvort ég fari á æfingu í dag, er með samviskubit dauðans:o/ Búin að vinna eins og brjálæðingur alla síðustu viku og var með einni á 2 næturvöktum og á kvöldvakt um helgina sem var að kvefast og hvort hún hafi bara smitað mig, argagarg:o( Er búin að vera alveg ómöguleg í vinnunni í dag, hnerrandi trilljónmilljón sinnum og búið að leka annað eins úr nefinu á mér. Bara slöpp og asnaleg. Þannig að ég er eiginlega komin á þá skoðun að mæta ekki á æfinguna, þannig að ef þið lesið þetta sem farið á æfinguna megið þið alveg láta foringjann vita af hverju ég er að skrópa, buhuhuuu... Jedúdda, er með þvílíkt samviskubit, anda inn... anda út... Er nefnilega bara búin að hlaupa einn hálftímahring í vikunni sem gerir náttúrulega bara að 5.6 km. Ætli það sé ekki best að ná sér góðri frekar að gera sig verri? Kem þá í miklu stuði á miðvikudag;o) Veit svei mér þá ekki hvort ég fari í Brúarhlaup Selfoss eða Reykjanesmaraþon um helgina... ef ég fer tæki ég í mesta lagi 10 km. Sjáum bara til með það allt saman.

Allavega, vildi láta vita af mér. Reyni að blogga sem fyrst my pípol:o)

Kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?