Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

miðvikudagur, ágúst 29, 2007

Skammiskamm:o/ 

Vildi láta pínu vita af mér. Er búin að vera rosalega slöpp og asnaleg síðan á mánudag. Hef rétt svo hangið í vinnunni hnerrandi, hóstandi og asnaleg. Er búin að vinna eins og brjálæðingur og var tvöfalt í gær út af veikindum og var sko varla að meika það. Samtals í þessari vaktatörn tek ég 11 vaktir á 13 dögum og guð hvað ég hlakka til að komast í helgarfrí, jeddúdda mía. HALLELÚJA, HALLELÚJA, HALLELÚJA, HALLELÚJA......

Veit ekki alveg hvort ég komi á æfingu í dag, er ennþá svolítið slæm í kvefinu, þetta er aðallega í lungunum, smáastma"drulla" sem er að stríða mér. Er með gríðarlegt samviskubit yfir þessu:o/ Hildur mín, ætli ég sé ekki bara meðvirk með þér í hlaupapásunni, hehe... Síðan vaknaði ég rosalega illa með þvílíkan sinadrátt í kálfanum, hélt ég myndi deyja. Var með lokuð augun og æpti: "Nei, nei, plís ekki." Svolítil dramatík í sumum. Finn svolítið til þegar ég kreppi kálfann og er sko aldeilis ekki sátt við það:o/

Þannig ef þið hittið foringjann því ég hef ekki hugmynd hvort hann sé kominn með síma eða eitthvað svoleiðis, megið þið láta vita af hverju ég sé að skrópa. Mér finnst það alveg hræðilegt.

Svo ég sé ekki alveg hrikalega neikvæð þá er víst tölvan mín alveg í lagi samkvæmt viðgerðarkörlunum sem er rosa skrýtið því skjárinn var steindauður. Þeir voru víst með hana í sérstakri hleðslu í sólarhring og það var kveikt á henni allan tímann. Hún virðist vera í lagi, þannig að ég er sátt við það:o)

Allavega, best að drífa sig að vinna eitthvað, geri aðra tilraun til að koma á æfingu á morgun. Held að ég keppi ekkert um helgina þar sem ég hef ekkert náð að æfa af viti:o/

Kær kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir):
Hæ gott að hafa svona stuðning í pásunni ;o), er búin að vera í skólanum í allan dag og náttúrulega sitjandi og ég er að drepast í hnéinu, það er náttúrulega bogið allan tímann..Mér líst ekkert á þetta!!! En hvað heitir systir þín?
kv.Hildur
 
Dí, búið að vera geðveikt vesen á manni;o) Systa heitir Helga Björg:o)
 
Skrifa ummæli
2 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?