Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

miðvikudagur, september 26, 2007

Frekar kreisý í dag.. 

Það var sko allt kreisý hjá manni í dag að það hálfa væri svo ótrúlega miklu meira en nóg. Það var svo brjálað að gera í vinnunni, held ég hafi aldrei upplifað annað eins, guð hvað ég var fegin að komst út í dag í hreint súrefni. Var sko á þönum allan tímann frá hálfátta til hálffjögur án þess að varla stoppa . Fór í morgunmat rúmlega tíu (í stað tæplega níu venjulega) og í hádegismat ca. hálftvö, tvö (í stað ca. tæplega hálfeitt venjulega) Margir þungir sjúklingar að lyfta og færa og maður beitti sér nú ekki alveg rétt alltaf þannig að það tók svolítinn toll af bakinu og svoleiðis og líka af æfingunni í dag því miður:o/

Var eitthvað svo asnaleg á æfingunni í dag, eins og ég segi; örugglega einhver þreyta eftir daginn (t.d. illt í bakinu eftir "lyftingar og færingar" á sjúklingum eftir asnalega líkamsbeitingu) og líka bara leiðinlegt veður, rigning og rok. Var bara ekkert að fíla mig neitt á leiðinni í dag. Ætlaði svo að tækla 10 km en endaði á því að fara bara hálftímann sem gerir að 5.6 km. Ég stoppaði áður en maður beygði í áttina að Fossvoginum eða fór bara áfram á Langholtsveginn og ákvað eftir smá umhugsun að fara Langholtsveginn.

Þegar æfingin byrjaði var ég fljót að verða eins og móður hundur en það lagaðist eftir einhverja stund, skil ekki af hverju það sé að gerast af og til. Spurning bara að vera með pústið alltaf á æfingum just in case og svoleiðis. Hnéskelin var svona bara lala. Æi, þetta er eitthvað skrýtið. Ef þetta væri þreytuverkur eftir þriggja tíma hlaupið, ætti hann ekki að vera farinn núna? Ég meiddi mig ekkert í hlaupinu þannig, var bara með hugmynd hvort þetta hafi verið kuldinn eftir alla rigninguna sem hefði strítt mér eitthvað. Einhver dofi og pirringur í hnéskelinni og finn að hægri fóturinn (þar sem þessi pirringur er) var eitthvað þyngri á sér í dag.

Sæi þetta fyrir mér í einhverri teiknimyndasögu; reyna að hlaupa úti og vera eins og móður hundur með tunguna lafandi út um munninn og annar fóturinn asnalegur og skakklappandi... hehe... maður verður nú að hafa smá húmor fyrir sjálfum sér;o) En svona án gríns hitti ég á einn hlaupara á mánudag sem ég man ekkert nafnið á (en fylgist með manni öðru hvoru;o), held að hann sé ekkert í Laugaskokk, veit ekki. Allavega, hann benti mér að það væri sniðugt að vera með hitahlíf á hnénu þannig að ef þetta lagast ekki, þá er spurning um að prófa það kannski.

Best að hætta þessu rausi í bili, þetta var bara ekki minn dagur, hendir það ekki alla einhvern tímann að eiga slæman dag? Ég fór allavega út á æfingu, ætlaði nú ekkert að gera það fyrst en dreif mig svo:o)
Var að klára sjöttu vaktina í röð og var beðin um að taka aukavakt á morgun á hinni deildinni en ég náði að hiksta einu stykki af nei-i af mér. Næ aldrei að segja annaðhvort já eða nei. Það er alltaf; æi, sko.. Þarf alltaf að afsaka mig, þarf endilega að fara að hætta því.

Æfing á morgun þannig að ég ætla að stefna að því að fara að Árbæjarstíflunni, vona að það verði skárra veður. Þetta gæti orðið besta vikan síðan eftir Reykjavíkurmaraþon og gæti náð 25 km. Vinn hægt og sígandi að því að komast í gott hlaupastuð fyrir veturinn;O)

Kær kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?