Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

mánudagur, september 24, 2007

I´m here... ;o) 

Bloggleti dauðans að það hálfa væri miklu meira en nóg, verýverý sorý (talað með spænskum hreim;o)

Verð að játa syndir mínar. Hef varla gert neitt af viti síðustu vikuna. Var eitthvað svo pirruð og asnaleg í hnéskelinni eftir miðvikudagsæfinguna þannig að ég skrópaði á fimmtudaginn, fékk geðveikt samviskubit yfir því, fæ alveg geðveikan hnút í magann. Var reyndar líka svolítið slöpp en ég bruddi íbóprófen þann daginn (það var ekki til íbúfen á öllu landinu! Ótrúlega skrýtið) Ákvað þá að hvíla fram yfir helgina og koma hress í dag. Held að það hafi bara verið gott að fá smá hvíld. Fór reyndar í keilu í gær og þá fann ég fyrir smá óþægindum. Verð nú að fara að hætta þessu væli, þetta eru bara einhver þreytuverkir;o)

Allavega, skellti mér á smá æfingu í dag en ég verð að viðurkenna að ég sökkaði bara ósköp feitt. Ógeðslega kalt og bara rosalega vetrarlegt eitthvað sem lá í loftinu... brrbrr... Eins og venjulega er ég bara ógeðslega lengi í gang (þessi fitubolla þarf að reyna að losna við meiri fitu svo hún verði léttari á sér, svolítið óþolinmóð stundum;o) Vonandi að það lagist bráðum.

Síðan strögglaði ég eitthvað af stað, kveikti á Garminum mínum frekar seint og var að fikta í honum þegar við lögðum af stað og missti svolítið af hópnum í upphituninni (farið um Teiga og Læki) en fór allavega einn Brúnaveg og hálftímahring sem gerir að rétt rúmum 7.8 km. Neyddist til að labba og skokka til skiptis brekkurnar en náði að spretta ágætlega niður á við. Foringinn vill að ég leggi áherslu á að spretta niður brekkur og reyna að lengja skrefin og svoleiðis. Svona lala æfing bara þannig í heildina séð. Fann fyrir dálitlum pirring í hnéskelinni eins og smá dofatilfinningu, frekar skrýtið. Þetta er bara einhver ímyndun í mér.

Er farin að hugsa um markmið sem ég ætla að láta verða af kannski eftir svona 2-3 eða jafnvel 4 ár, maður veit aldrei:o) Draumamarkmiðið er að fara heilt maraþon og síðan að fara Laugaveginn. Vona að ég geti það einhvern tímann. Þetta verður allavega markmið (rosa mikið eða þannig) Fer pottþétt 1/2 maraþon á næsta ári og örugglega þriggja tíma hlaupið líka. Svo er alltaf draumur að verða eins og hraðari og flottu hlaupararnir (eins og allir í Laugaskokk) og verða fit og fín. Sometime, sometime, I hope:o)

Voðalega masa ég mikið um ekkert, svona er að vera með svefngalsa dauðans eftir erfiða vinnuhelgi og kalda hlaupaæfingu;o) Allavega, æfing á miðvikudag og býst við að þar verði tækluð ein 10 kvikindi.

Kær kv. Moi sjálf


P.s. Læt fylgja nokkrar myndir úr þriggja tíma hlaupinu (af
http://www.laugaskokk.is/)


Athugasemd(ir):
Ertu ekki að misskilja Pétur eitthvað? Ef þú ert slæm í hnjánum, þá ættir þú alls ekki að hlaupa niður brekkur! Það er svo mikið álag á hnén.
 
Held að hann hafi verið að meina þetta þegar ég er ekki slæm og svoleiðis. Svona upp á að æfa mig að lengja skrefin smátt og smátt. Held ég spretti ekki alveg á næstunni, er bara frekar slæm núna í hnénu:o(
Kv. Sveinbjörg
 
Skrifa ummæli
2 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?