Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

þriðjudagur, september 18, 2007

Svolítið skrýtin í hnénu... 

Er enn alveg ógeðslega glöð yfir laugardeginum, trúi varla að ég hafi meikað þetta en það gerði ég nú samt, jibbíjei;o)

Skrópaði pínu á hlaupaæfingu í gær, neyddist til að vera á kvöldvakt, buhuhuu.... Tók hálftímann í staðinn bara létt og rólega til að sýna smá lit, sem gerir að 5.6 km í þetta skiptið.

Er búin að taka eftir einhverju skrýtnu í öðru hnénu eftir laugardaginn. Meiddi mig nú ekkert eða neitt svoleiðis. Er með einhvern pirring eða einhvern fiðring og smá óþægindi í hnéskelinni, búin að finna svolítið mikið fyrir þessu í vinnunni. Ætli þetta geti ekki verið eftir rigninguna og kuldann sem var þarna á laugardaginn? Fann nefnilega á síðustu metrunum hvað mér var ísjökulkalt á hnjánum í lokin á hlaupinu. Ég neita algjörlega að hafa meitt mig, myndi aldrei viðurkenna neitt svoleiðis hvort sem er, heldur harka bara af mér;o) Ég fann allavega ekki fyrir neinum óþægindum á leiðinni. Þetta eru kannski líka þreytuverkir, æji veit ekki. Vona að þetta sé í lagi, hlýtur að lagast:o)

Svo er bara æfing á morgun. Ætli það verði ekki Fossvogurinn eða eitthvað svoleiðis á dagskránni en maður veit aldrei;o)

Kær kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?