Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

föstudagur, október 19, 2007

BogguPUÐ 3 

Excusa hvað mín hefur verið löt að blogga, ekki alveg í lagi með suma.. hehe.. ;-)

Ætla að byrja á því að játa syndir mínar að hafa ekki farið á hlaupaæfingu í gær og fyrradag! Skammi skamm, er ekki í lagi með suma? Fékk einhverja bévítans magakveisu og ég var bara að deyja, not good og ég bara treysti mér gjörsamlega ekki á æfingu, buhuhuu... :o( Þvílíka samviskubitið sem maður fær að það hálfa væri miklu meira en nóg. Ég hugsaði klukkan rúmlega hálfsex til hálfsjö hvar allir skyldu vera á leiðinni sem ætti að fara í Fossvoginum og Elliðarárdalnum. Hvernig er hægt að fá svona mikið samviskubiskubit? Þetta er náttúrulega eitthvað sem ég er að skuldbinda sjálfa mig í að gera fyrir sjálfa mig og eitthvað sem ég hef mikinn áhuga á og þarf að gera gera fyrir líkamlega partinn og líka þann andlega. Maður endurnýjast gjörsamlega eftir æfingarnar. Úps, svolítið væmið... *ROÐNNIÐURÍTÁ*

Allavega, fór sko í þokkalegt BogguPUÐ í dag. Það var sko algjörlega tekið á því þótt ég segi sjálf frá. Það voru farnir ÞRÍR hringir í þetta skiptið og vá hvað þetta tók mikið á eitthvað. Var rétt að meika tvo hringi og ætlaði ekkert að fara í þriðja hringinn en síðan ákvað ég að vera ekki að væla þennan síðasta hring af mér þannig ég kláraði hann með herkjum en klárað og vá hvað ég svitnaði, bara hörkupúl:o) Þetta gengur bara betur með hverju puðinu sem líður en verð nú samt að viðurkenna að maður svindlar svona pínu á nokkrum æfingum sem maður er ekki alveg að meika á köflum;o) En þetta gekk bara fínt og er alveg bara ógeðslega skemmtilegt, það þurfa held ég allir á svona að halda; að svitna svolítið og skemmta sér í góðra vina hópi:o)

Svo verður haustfagnaður hjá hlaupó eftir 2 vikur og allt að styttast. Er reyndar að vinna þessa helgi sem er mjög dæmigert þegar eitthvað er að gerast hjá hlaupó, I´m so not kidding. Þetta stenst í svona 99.7 % tilfella að það séu fullt af einhverju að gerast á vinnuhelginni minni. Er reyndar næstum búin að skipta helginni þannig að ég kemst, það eru svona 99.9% líkur á því;o) Allavega, hlakka alveg rosalega til. Verður ábyggilega mikið stuð og mikið gaman, en ekki hvað?;-)

Best að hætta þessu rausi og fara að gera eitthvað. Kemst ekki á æfingu á morgun, er að vinna. Æfing næst á mánudag þar sem það verða þokkalega Brúnavegssprettir á matseðlinum, ætla að stefna að því að fara 4 Brúnavegi, we´ll see:O)

Kær kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir):
Hey hristu þetta samviskubit af þér! allveg mannlegt að vera veikur, og já 4 brúnavegi? go for it!!!
 
Skrifa ummæli
1 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?