Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

mánudagur, október 01, 2007

Harðsperrur dauðans... 

...I'm not kidding. Þetta er sko þokkalega púl í lagi, Boggupuð en ÓGEÐSLEGA GAMAN;o) Held ég hafi aldrei á ævi minni fengið eins slæmar harðsperrur, djísús kræst bara. Þetta er búin að vera rosaleg helgi. Er búin að vera eins og gömul kona, varla getað teygt mig né beygt og óað og æjað við hverja hreyfingu. Þegar ég fór fram úr rúminu, þurfti ég að rúlla mér fyrst rólega á hliðina áður en ég gat sest upp, frekar fyndið... ...EFTIR Á.. ...hahaha.. ;o) Er annars bara búin að taka því rólega um helgina, var ekki að meika það að fara á æfingu á laugardagsmorgninum sem þýðir að ég SKRÓPAÐI! Skammi, skamm. Hnéð er svona lala.. Fann reyndar ekkert mikið fyrir því á tímabili út af harðsperrunum en fann vel fyrir því þegar ég ýtti og potaði í það.

Fór í bíó í gærkvöldi og sá myndina Veðramót. Alveg rosalega góð. Ég lifði mig ótrúlega inn í myndina að það hálfa væri nóg. Var hætt að hugsa að þetta væri bíómynd. Upplifði mig eins og ég væri á staðnum, "svolítið" skrýtin, I know:o) En sagan var alveg rosaleg. Held hún sé sannsöguleg, minnir að ég hafi heyrt það einhversstaðar.

Kemst ekki á æfingu í dag, neyðist til að vera á kvöldvakt, buhuhuu... :o( Fór út í morgun og tók bara hálftímann sem gerir að 5.6 km. Gekk bara ókei, þurfti samt að labba inn á milli. Nú fer veturinn bara í það að byggja sig upp á nýtt og vera komin í flott form fyrir næsta sumar, hopefully *KROSSAPUTTA* :O) Finn síðustu daga að ég hafi þyngst talsvert þótt ég hafi passað mig. Er með alveg geðveikan bjúg á fótunum og held að það sé skýringin (þykist ég nú vera einhver læknir!) Ég sef alltaf með hátt undir fótunum og þegar ég fór að sofa á laugardagskvöldið fann ég barasta hvernig vatnið rann í fótunum, það var frekar óþægileg tilfinning verð ég að viðurkenna.

Svo er það bara æfing á miðvikudag næst og svo kemst ég líklegast ekki á fimmtudag sem þýðir bara skróp! Skammi, skamm:o/ Er nefnilega að fara í leikhús og sjá Ladda, hlakka geðveikt til. Er í staðinn að hugsa um að vera dugleg á föstudag og hlaupa fyrir hádegi, kannski einn hálftíma eða svo og síðan Boggupuð seinnipartinn. Ætla sko ekki að gefast upp þrátt fyrir SMÁ harðsperrur dauðans. Bjargey sagði að þetta yrði betra eftir næsta tíma og ég ætla að trúa því;o)

Best að fara að gera eitthvað af viti.

Kær kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?