Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

fimmtudagur, október 11, 2007

Sprettir geta bara verið skemmtilegir.... 

....þótt ég segi sjálf frá;-)

Fór að sjálfsögðu á æfingu í dag og tók aftur bara hálftímann sem gerir að 5.6 km, rosa mikið eða þannig. Fórum flest hálftímann og fórum hann öfugan eða "hommann" eins og foringinn segir stundum, það var frekjan í sumum sem varð til þess að það var farið öfugan hring.. hehe.. hver ætli það hafi verið... hmm.. ;o) Allaveg, gekk bara ágætlega, labbaði aðeins á köflum en prófaði að taka samt góða spretti líka inn á milli sem var bara fínt og þá fann ég að það gæti verið skemmtilegt að spretta aðeins og leið bara vel eftir þá þó svo ég hafi samt verið alveg að deyja svo fáránlega sem það hljómar.. hehe... Hef nefnilega aldrei verið neinn sérstakur aðdáandi spretta eins og ætti að vera kunnugt hérna einhversstaðar;o) En ég var nokkuð sátt við mig í dag. Helga Eyja skvís er komin aftur á æfingar og heldur mér gjörsamlega við efnið, takk skvís, rosalega gott að fá þig aftur:o)

En þetta er reyndar "besta" vikan síðan eftir þriggja tíma hlaupið góða og gerir að 17.37 km, ussussussuss... LÉLEGT! Eeen... ég held að ég sé að komast betur í gang núna eftir þessa viku. Finn svona af og til í hnénu á hlaupunum en þetta er ekki eins slæmt og hefur verið upp á síðkastið, búin að vera að kæla og kæla og bryðja svona eina og eina íbóprófen inn á milli og ég held að það sé bara fínn kokteill til að vinna á þessu dóti. Ætla að fara að bæta við mig í næstu viku. Stefna að því að fara 3 Brúnavegshringi á mánudag og fara 10 km á miðvikudag. Sjáum hvernig það gengur.

Sykurbindindið er bara í fullum gangi og gengur bara fínt en eins og ég segi verður ábyggilega eitthvað sukkað um helgina svo ég játi syndir mínar fyrirfram en ég byrja aftur á fullu á mánudag þannig að það hlýtur að fara eitthvað af þessu drasli af mér bráðum, PLÍZ! Það er enn slatti mikið af bjúg á fótunum þannig að ég ætla að obsa það dót eitthvað áfram, ætla að prófa svona vatnslosandi birkisafa frá Weleda og see what happend:o)

Svo er ég bara að fara í þriggja daga helgarfrí og eins og fólk ætti að vita núna, þá er ég að fara norður á morgun, jibbísjibbí. Það verður örugglega geðveikt gaman. Ætlum að leggja af stað um hádegi og dúllast. Kíki pottþétt í jólahúsið þarna eða hvað sem það heitir;o) Ætla bara að taka því rólega um helgina og hvíla hnéð og kæla áfram og taka inn íbóprófen ef þarf. Kem svo vonandi klár í slaginn á mánudag.

Þangað til á mánudag, knús og kram á alla:o)

Kær kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?