Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

miðvikudagur, október 03, 2007

Á upphafsreit og áfram gakk (hlaup)! 

Þetta hugsaði ég með mér á hlaupaæfingunni áðan. Búin að vera í hálfgerðu fýlu/vælu/þunglyndiskasti yfir þessu hnéveseni sem er búið að vera að pirra mig en þetta heitir á íslensku máli um mig; sjálfsvorkunn Sveinbjargar! Ég er búin að vera að væla og væla meðan Hildur greyið mitt er búin að standa í heilmiklu veseni með sitt blessaða hné sem er sko þokkalega búið að hrjá hana, æi greyið mitt, ég vona að þetta fari að lagast hjá þér:o/ En nú hætti ég þessu væli, ungfrú Sveinbjörg María! Ákvað að láta þetta vesen ekki buga mig heldur styrkja. Byrja bara hægt og vinn mig aftur upp í það sem ég var komin með í sumar. Ætla taka bara lítið í einu nokkrum sinnum og bæta við mig þar til ég verð komin í þær vegalengir sem ég var farin skokka og ýkt góð, hopefully;o)

Jæja, fór á æfingu í dag í grenjandi rigningu á köflum og það var bara fínt, ansi hressandi og fínt (Já, og sumir komnir í Pollýönnuleik! Er algjör snillingur í því. Ef einhvern vantar Pollýönnu er ég til staðar;o) Allavega, tók bara hálftímann sem gerir að 5.6 km. Gekk bara þokkalega svosem. Fann aðeins fyrir hnénu en samt ekki eins mikið og síðustu vikuna, þannig að það er jákvætt. Viðurkenni að ég þurfti að labba eitthvað inn á milli. Er búin að vera nokkuð dugleg að kæla og það virðist vera að gera gæfumuninn fyrir elsku lappargreyið (plús nokkrar íbúprófen:o) Foringinn sagði mér bara að kæla áfram og sjá hvað gerist og vonum það besta.

Skrópa á æfingu á morgun. Kannski ekki skróp þar sem foringinn veit af því;o) Er að fara í leikhús annað kvöld að sjá Ladda og hlakka geðveikt til, hef heyrt alveg rosalega gott um sýninguna. Spurði foringjann hvort ég ætti ekki bara að fara á föstudaginn í staðinn að skokka, svona fyrir Boggupuðið, sagði hann að það væri alveg óþarfi að skokka ef ég færi í puðið því það tekur svo á þannig að var á því að ég ætti að nota morgundaginn og föstudaginn til að hvíla fyrir púlið, ekki veitir af því ég þarf að vera skárri heldur en síðast, ó mæ lord. Þið mynduð springa úr hlátri að sjá mig í þessari stöðvaþjálfun, var eiginlega bara að sökka feitt, en hey, ég gat samt sippað pínu, hef sko ekki sippað síðan í gaggó í den tid:O)

ÖRLÍTIÐ Á UPPHAFSREIT OG ÁFRAM GAKK (HLAUP)! (Sagt með hermanna marseringartón;O)

Best að hætta þessu bulli og rausi.

Kær kv. undarlega og skrýtna pían, a.k.a. Moi sjálf
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?