Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

fimmtudagur, október 25, 2007

ZZZZzzzzz....*HÓSTHÓSTOGSNÝTÍBRÉF* 

Jahérna hér, kemur skróparinn og sökkarinn mikli og smá lasarus.. hmm.. Held svei mér þá að ég sé að grípa í smá flensudrullu, argagarg:o/

Var inni hálfsofandi allan gærdaginn og versnaði bara í nótt. Fór að sofa fyrir hálftólf og v
aknaði klukkan þrjú og var vakandi til sirka hálffimm í morgun, hnerrandi og hóstandi eins og brjálæðingur og og snýtandi í svona trilljón bréf og aumingjans nefið mitt orðið eins og á Rúdolf hreindýri, mjög sexý semsagt... hmm.. ;o) Svo fékk ég þennan þvílíka hausverk að ég hélt að ég myndi deyja, bleytti þvottapoka með ísköldu vatni og setti á ennið og augun og það bjargaði mér heillengi. Svo vaknaði ég hálfsjö af því ég átti að fara að vinna en ég ákvað eftir langar pælingar að hringja mig veika, get bara ekki verið svona í kringum sjúklinganakjúklingana og þar að auki ekkert búin að sofa. Ég fæ samviskubit yfir öllu, er ekki í lagi með mig!?

Þannig að ég býst ekkert við að fara á æfingu í dag og veit heldur ekkert hvort ég komist í Boggupuð:o/ Missi þá ábyggilega af dýrmætum upplýsingum um haustfagnaðinn gó
ða, megið kommenta hérna ef það kemur eitthvað nýtt um hann:o)

Jæja, best að fara að snýta sér aðeins meira og lúra pínu.

Knús og kram frá skrýtna lasarusnum a.k.a. Moi sjálf;-)
Athugasemd(ir):
Láttu þér batna vina mín...
kv.Hildur
 
Takktakk sæta, reyni að gera það. Mundu það sem ég sagði, þú átt eftir að standa þig frábærlega á laugardaginn:o)
Knús, Sveinbjörg M.
 
Skrifa ummæli
2 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?