Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

laugardagur, nóvember 24, 2007

Bloggleti....... 

Dúddamía, hvað er í gangi hér á bæ!? Svarið er BLOGGLETI dauðans, execuse me *ROÐNNIÐURÍTÁ* Æi, er þá ekki best að bæta aðeins úr því?;o)

Það er búið að vera bilað að gera hjá mér alla síðustu viku. Held að ég sé búin að vera sirka 85% vikunnar í vinnunni, vinna 9 vaktir á 7 dögum í röð. Er núna í helgarfríi og ætla að vera í fríi og hana nú! Svo verður dálítil törn fram að jólafríi 21. desember en þá nýtur maður bara frísins betur, er það ekki bara?:o)

Komst ekki á æfingu á miðvikudag og fimmtudag út af því að ég var á kvöldvakt og var á námskeiði á fimmtudaginn en ég hljóp nú eitthvað smá þó ég hafi skrópað, úbbóbobb;)

Ákvað að spretta pínu úr spori á miðvikudag og gerði það sem mig langaði svo hryllilega til og tók nokkra Brúnavegshringi, búin að bíða lengi eftir því að fara Brúnaveginn, en skrýtið;o) Allavega, tók 3 spretti og sirka tvo km í upphitun og niðurhlaup eða hvað sem það kallast og var um 8 km. Garmurinn minn er dálítið dáinn í augnablikinu, þarf að fara að hlaða blessaðan. Þetta gekk bara vel og spretti eins og brjálæðingur niður brekkurnar, alveg eins og ég ætti lífið að leysa að það hálfa væri nóg;o) Var bara nokkuð sátt.

Svo á fimmtudaginn fór ég aðeins seinna af stað og fór því ekki á æfingu út af blessaðu námskeiði sem ég fór á og var bara mjög skemmtilegt en kannski svolítið langt. Þetta var semsagt fyrir sjúkraliða hjartadeildanna um allt sem tengist hjartanu og ýmislegt og endaði með grunnendurlífgunarnámskeiði, bara mjög fræðandi og gaman. Ég skrapp bara og dúllaðist rétt hálftímahringinn um kvöldið sem gerir að 5.6 km, var eitthvað þreytt og löt en ég gerði allavega eitthvað, give me som sjens.. hahaha;o)

Eins og ég segi, þá er bara slökun og örugglega eitthvað jólabúðaráp og vinna og aftur vinna í næstu viku/vikur og að sjálfsögðu æfingar inn á milli, hvað annað?;-)

Knús og kram, Moi sjálf

~30 DAGAR TIL JÓLA~

Athugasemd(ir):
Vertu dugleg að mæta á æfingar, ég verð dugleg á spáni að ganga í búðir sjáumst í næstu viku,,
kv.Hildur
 
Skrifa ummæli
1 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?