Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

þriðjudagur, nóvember 13, 2007

Úff þessir sprettir... 

Ó mæ lord, netið datt út hjá mér í gær og mín var sko ekki aldeilis ánægð með það.

Allavega, skellti mér á æfingu í gær og það voru sko sprettir í boði, úffpúff, langt síðan ég hef tekið svona á. Þetta voru einhverjir 500 metra hringir hjá Skautahöllinni og Þróttarvellinum eins og við fórum síðasta mánudag. Fórum rúman kílómeter í upphitun, sprettir og niðurhlaup. Ég hélt ég myndi deyja í lokin og ég tók bara 4 spretti, ekkert smá lélegt. Var svo slæm að ég náði varla andanum eftir síðasta sprett, var svo erfið djúpöndunin að ég hélt að ég væri barasta að kafna, hrikalega óþægilegt og var miður mín hvað þetta var lélegt, fékk meira að segja eitthvað stresskast (svona eiginlega panic attack, ofandaði í miðjum spretti) upp brekkuna í miðjum spretti, frekar asnalegt EEEN ég labbaði ekkert í dag á æfinguni, það er það eina sem ég get verið stolt af enda voru þetta bara 4.67 km... hmm.. Þó ég hati spretti verð ég að standa í þeim líka:o) Vildi óska að ég sökkaði ekki svona feitt alltaf:o/

Keypti mér annars hlaupabuxur í dag fyrir veturinn, alveg rosa fínar. Hinar sem ég var í voru orðnar rifnar.. buhuhuu.. uppáhalds buxurnar:o/ Komin með blöðrur og núningssár á innanverðum lærunum eftir að hafa notað buxurnar í gær, not verý gúd skal ég segja ykkur:o(

Allavega, ætla að reyna að fara að klára að skrifa jólakortin og pakka nokkrum gjöfum og já, ég veit ég er svolítið skrýtin að byrja svona snemma en ég er bara í svo miklu jólaskapi:o) Minni á jólastöð á netinu sem var að byrja:
http://www.jolastjarnan.net/ , bara algjör snilld fyrir svona jólapúka eins og mig:o) Lalalaaalalalaa.....

Svo er bara æfing á morgun og smá leti inn á milli:o)

Knús og kram, Moi sjálf
Athugasemd(ir):
Þú stóðst þig vel og hættu að brjóta þig svona niður!!!Já bara hér og nú..Þú ert að gera hluti sem fullt af fólki getur ekki..sjáumst í dag!!
Kv.Hildur
 
Skrifa ummæli
1 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?