Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

fimmtudagur, nóvember 29, 2007

Hólmarnir voru það heillin 

Jæja, eitthvað svo innilega löt að blogga að það hálfa væri aldeilis meira en nóg.

Komst ekki á æfingu í gær út af því að ég þurfti að fara á næturvakt en ég fór fyrripartinn að hlaupa dálítið og fór inn í Hólma og tilbaka sem gerir að 7.4 km. Gekk bara ágætlega. Fór bara samt á rólegu tempói og mæddist þá ekkert mjög. Skil ekki hvað ég er góð að sprengja mig á upphafsmetrunum. Þarf að fara að róa mig niður dálítið í byrjun æfinga svo ég verði nú ekki alveg ómöguleg það sem eftir:o)

Skrapp svo á æfingu í dag og þá var það aftur Hólminn en ég fór pínu lengra og fór litla hringinn inn í Hólmanum í niðamyrkri og fljúgandi hálku. Ég var svo slök þegar ég fór yfir brúna sem er beint á móti undirgöngunum að ég fattaði ekki að passa mig á hvort það væri hálka þannig að hljóp væri eins og eðlilegt væri og þegar ég var komin yfir brúna rann ég næstum því beint á hausinn. Það kom svona smá halli eftir brúna og lenda í fljúgandi og ekkert smá þykkri hálku. Ég pissaði næstum á mig af hræðslu og í þessu þvílíka myrkri, það mætti nú alveg setja einn, tvo ljósastaura þarna, er ekki að djóka sko. Svo skröltist ég hringinn á hænuskrefum og ekki skrefinu lengra. Var alveg drulluhrædd sko. En þetta gerði að 8.5 km. Var líka nokkuð ánægð með mig í dag því ég þurfti að labba lítið sem ekki neitt nema aðallega á fjallabaksleiðinni í Hólmanum. Náði að paca á sama hraða allan tímann. Var reyndar ekki með elsku Garminn minn þar sem sumir eru dálítið latgjarnir að hlaða, ojojoj Sveinbjörg María! En ég fann að ég var á svipuðum hraða mestallan tímann þar sem sumir "óvart" sprettu eins og brjálæðingar af stað til að sanna sig fyrir nýjum verðandi hlaupadrottningum í hlaupahópnum en leið ágætlega eftir þessa spretti eftir að ég jafnaði mig;o)

Svo er bara vinna og aftur vinna... ...ZZzz... ...og svo eru að sjálfsögðu running og aftur running, en ekki hvað?;-)

Knús, Moi sjálf

~25 DAGAR TIL JÓLA~
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?