Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

miðvikudagur, nóvember 07, 2007

Hólminn í dag og hann Óli minn! 

Jebs, það var farið inn í Hólma í dag í rigningu og dálítið köldum vindi.. brr... Það var nú frekar fámennt en góðmennt. Það "þykjast" einhverjir ætla í Powerrade á morgun.. hehe... Bara djók, auðvitað fjölmenna flestir á Powerrade. Ég veit ekki hinsvegar með sjálfa mig, hvort ég muni eitthvað taka þátt í Powerrade í vetur, "gunguchicken." Er alveg hrikalega hrædd við Rafstöðvarbrekkuna og brekkuna sem er lengst inni í Víðidal og þar og nenni ekki að láta alla bíða eftir sumum.. hehe..

Allavega, dreif mig semsagt á æfingu þrátt fyrir að ég hafi verið í "nenni ekki stuði" í dag. Eiginlega í fyrsta sinn sem það gerist, skammi, skamm! Var ábyggilega veðrinu um að kenna, það var eitthvað svo drungalegt. Gekk bara alveg ágætlega, fann reyndar aðeins til í elsku beinhimnubólgunni minni þannig að það er Deep heat treatment á dagskrá í kvöld. Langaði alveg hryllilega að fara hálftímann en foringinn var bara NEI! Hólminn skyldi það vera heillin. Þannig að mín hlýddi og fór bara inn undirgöngin og tilbaka og það gerir að 7.4 km sem er bara ágætt og búin að klára tvær æfingar í röð, jibbísjibbí, sko mína, virðist allt vera að koma HÆGT og sígandi en þó að koma:o) Þurfti að labba eitthvað aðeins inn á milli en ég prófaði líka að taka brjálaðan sprett í nokkrar sekúndur þannig að ég fann fyrir því. Hef nú bara gott af því.

Búin að vera í þvílíku bílastússi í dag með elsku sæta rauða Pólóinn minn, held að ég skýri hann bara Óla hér með:Þ Hann fékk ný dekk þessi elska fyrir veturinn og það kom í ljós að dekkin sem voru undir væru bara búin greyin. Hvernig er ég eiginlega búin að fara með hann aumingjans Óla minn? Svo þegar bróðir minn var að keyra hann inn á verkstæðið sá ég að hann var eineygður!! Jedúdda mía, er ekki í alveg í lagi með mig og ég sem var að hlusta á Bylgjuna í gær þar sem var verið að kvarta yfir ljósleysi hjá ökumönnum í símatíma og ég hló góð með mig í bílnum mínum keyrandi um göturnar að ég væri sko ekki ein af þessum ljóslausu ökumönnum en ÚPS!! Ég fékk svo mikið sjokk þegar ég sá þetta að við drifum okkur síðan á bensínstöð þar sem gellan sem þar var að vinna, vildi eða kunni ekki að skipta um kerti á bílnum og benti okkur vinsamlega á að fara á smurstöð. Það vildi svo skemmtilega til að við eigum fjölskylduvin sem er með bílaverkstæði þarna í Kópavogi og hann reddaði okkur á fimm mínútum. Fór meira að segja úr verki til að sinna okkur:o) Það var líka brjálað að gera þarna. Allavega, elsku sæti Óli minn er í góðu standi núna þótt ég segi sjálf frá og bara tilbúinn fyrir veturinn:o)

Svo er æfing á morgun og samkvæmt foringjanum eigum við að fara að Árbæjarstíflunni, ætla að reyna að standa við það, gúd lökk for mí;-) Blessaður foringinn verður fjarri góðu gamni þar sem hann er að fara í aðgerð út af fótbrotinu sínu á morgun. Góðar batakveðjur sendi ég honum hér af bæ:o)

Knús og kram á alla, Moi sjálf
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?