Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

mánudagur, nóvember 26, 2007

Skautandi sprettir í dalnum 

Það er alveg rétt, maður var sko skautandi á sprettum á æfingu dagsins, mjög sexý sko. Það var semsagt sami spretthringur og í síðustu viku sem er sirka einn kílómeter eða svo. Var samt svo innilega ekki að nenna á æfinguna eftir vinnuna því það var svo klikkað að gera og maður var á hlaupum allan tímann með auðvitað troðfullt á gangi, ekki alveg að gera sig sko, get ég sagt. Ætli maður hafi ekki skrölt nokkra kílómetra, alls ekki ólíklegt. En auðvitað verður maður að rífa sig á rassgatinu og do what you got to do and that is to RUN;o)

Allavega, gekk bara allt í lagi á æfingunni. Reyndar byrjaði að játa syndir mínar fyrir foringjanum fyrir að hafa ekki komið á fimmtudaginn út af námskeiðinu sem ég var á. Herra foringi hefði svo viljað að ég hefði komið á fimmtudaginn því það voru þrjár nýjar stelpur sem voru að byrja og hann vildi að ég færi með þeim einhvern smá spotta og dæmigert þegar I´m needed að maður komist ekki.. dóóh! Var með smá móral í smástund en þetta reddaðist nú samt sem betur fer;o) Svo ég komi mér enn og aftur að sjálfri æfingunni gekk hún í heildina bara ágætlega þrátt fyrir að maður var skautandi mestalla leiðina. Þetta byrjaði fínt en svo snöggfrysti bara sem er rosalega skrýtið því það var ekki frost, sirka fimm stiga hiti og þegar ég var á fullu niður brekkuna hjá Áskirkju niður í dal, hélt að ég myndi detta á hausinn, sjitt hvað ég var hrædd maður að það hálfa væri nóg. Tók bara tvo hringi minnir mig og svo með upphitun og niðurskokki gerðu þetta að 6.4 kvikindum sem er bæting frá því í síðustu viku þannig að ég er að bæta smátt og smátt við mig á mánudagsæfingunum, jibbí. Maður gat náttúrulega ekki sprettað af viti án þess að eiga hættu á að stórslasa sig þannig að það fór flestir aðeins hægar. Leiðist reyndar alveg rosalega hvað ég er alltaf lengi á leiðinni og lúsast bara áfram (vildi óska þess að ég kæmist hraðar og væri "fittari", finnst þetta ganga eitthvað voðalega hægt... buhuhuu.. og ofan í allt að kafna úr bjúg á fótunum, líst eiginlega ekki á mig þessa dagana, vona að þetta fari eitthvað að minnka því þetta er rosalegt og sérstaklega eftir vinnuna) en maður kemst einhvern veginn áfram, s.b.r. KEMST ÞÓTT HÆGT FARI!;o)

Svo skellti ég mér í bíó í kvöld, á svona þrívíddamynd (3-D) fyrir fullorðna. Myndin heitir Beowuld eða Bjólfskviða og er rosalega góð. Allir í salnum geðveikir töffarar með þessi gleraugu til að sjá myndina, eins og allir hafi bara verið eins og James Bond, not;o) En ég mæli með þessari mynd þótt mér finnist dálítið dýr eða 1100 kr. Þetta er náttúrulega eitthvað öðruvísi en venjulegt bíó en samt, er svo mikill nískupúki innan í mér;-)

Jæja, best að fara að lúra sér og fara í háttinn. Æfing á miðvikudag. Ætli ég væli ekki að fara hálftímann, er nefnilega að fara á næturvakt. Leyfi mér að væla fyrir næturvaktir en annars ekki of course:o)

Knús og kram í klessu, Moi sjálf

~27 DAGAR TIL JÓLA~
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?