Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

laugardagur, nóvember 17, 2007

Vinna og aftur vinna... Lalalala.... 

Jæja, enn og aftur mætt í vinnuna. Var á kvöldvakt og svo voru veikindi þannig að mín er áfram og sleppir morgunvaktinni sem hún átti að taka eftir kvöldvaktina. Komin svo mikill svefngalsi í suma að þeir eru farnir að tala í 3. persónu, ekki alveg í lagi!! Farin að sjá rúmið mitt í hyllingum, enda búin að vera í vinnunni frá kl. rúmlega þrjú í gær. Þetta er samt búið að vera bara ágætisnótt sem er mjög jákvætt því það var brjálað að gera á kvöldvaktinni, svo brjálað að ég fékk varla rapport heldur fór strax að vinna og hjúkkan sem ég var með á teymi skildi ekkert í því að ég væri ekkert komin þannig að hún hringdi inn á talhólfið mitt til þess að láta mig vita að ég ætti að vera í vinnunni núna... hehehe.. úbbósí:o)

Svo var ég ekkert roslega dugleg á fimmtudagsæfingunni og mætti ekki einu sinni á hana! Fór út í hádeginu og skröltist hálftímann sem gekk bara bærilega og gerir að 5.6 km. Það var svo kreisí að gera hjá mér á fimmtudaginn plús að ég var að deyja í maganum (bara þetta mánaðarlega drasl en sárt var það) Þetta var bara besta vikan mín í langan, langan tíma þó svo þetta hafi ekki verið brjálæðislega mikið, eða 20.32 km þannig að ég hlýt að vera að komast eitthvað í gang, I hope so:-)

Svo er bara svefndagur í dag og kvöldvakt á morgun og að sjálfsögðu er svo æfing á mánudag:o)

Sæjónara og knús og kram, Moi sjálf
~37 dagar til jóla~
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?