Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

föstudagur, nóvember 02, 2007

ZZZzzz... 

...Don´t nenn to work.

Er að láta mér leiðast í vinnunni, smá dauður tími og komin smá þreyta í mann. Búin að vera á tveimur næturvöktum í röð vegna veikinda og aldrei hef ég sofið eins lítið fyrir og milli vakta.

Þegar ég vaknaði eftir næturvaktina síðustu nótt leið mér ekkert smá illa og er búin að vera eitthvað asnaleg. Borðaði ekkert síðan kvöldinu áður og ekkert alla nóttina og fór að sofa um leið og ég kom heim (mjög gáfulegt að sjálfsögðu eða þannig) Vaknaði þvílíkt mygluð og svöng en hafði samt enga matarlyst en samt alveg þvílíkt óglatt af hungri svo ótrúlegt sem það hljómar.

Skellti mér út að tékka á þessum blessuðu 80´s fötum og fór í Hjálpræðisherinn og fann nú ekkert sem ég hélt að gæti verið 80´s~legt, hefur ábyggilega verið fullt af þeim þar, maður var nú bara algjört baby á þessum tíma;o) Verð nú að viðurkenna að mér fannst fólkið sem var að afgreiða dálítið spes. Það voru tvær kellur við afgreiðsluborðið að hvísla og pískra á fullu og svo var einn karl sem vann þarna líka, að aðstoða annan kúnna og þær voru að herma eftir honum upphátt með ýmsum tónum og látum, mjög fullorðinslegt af rúmlega fimmtugum kellum haa.. ;o) Ég keypti semsagt ekkert í þessari ferð og ákvað svo að fara í Kringluna þar sem var bilað mikið af fólki, þetta minnti nú bara á Þorláksmessu þegar fólk er að kaupa síðustu gjafirnar. Allavega, ég mæli ekki með því að fara í Kringluna í þykkri úlpu og þvílíkt svöng í steikjandi hita og mannmergð, maður datt hálfpartinn í sykurfall og fann það að hefði ekki þurft mikið til þess að liði yfir mig þegar ég lokins fór út.. úffpúff.. Fann nú ekkert spes sem nálgaðist að vera 80´s en ég fann alveg rosalega flottan kjól sem ég ætla að vera á laugardagskvöld:o)

Þó ég hafi farið í þennan 80´s leiðangur var ég eiginlega búin að finna mér ekkert smá hallærislegt dress og það í Hagkaup af öllum stöðum. Leggings og hlýrabolur í stíl með einu agalegasta munstri sem ég hef nokkurn tíma séð en ég var búin að sýna nokkrum dressið og það voru skiptar skoðanir hvort þetta væri eitthvað 80´s~legt en það voru þó fleiri á því að þessi múndering væri nokkuð í takt við þennan tíma og sjálfsögðu eru legghlífar með í dressinu;o) Skelli kannski svo sem einni mynd eftir helgi af manni.

Er ekkert búin að fara á hlaupaæfingar í rúma viku og finnst það alveg hræðilegt. Það liggur við að ég sé komin í þunglyndi út af þessu, svo mikið er samviskubitið, finnst ég bara algjör looser af því ég þarf að standa mig til þess að losna við þetta drasl af mér. Þessi flensu"drulla" er búin að stríða mér ansi mikið, ég sem verð ALDREI veik. Er nú skárri finnst mér fyrir utan að það koma tímar að ennisholurnar stíflast eins og ég veit ekki hvað og talsvert nefmælt og aðeins sár í hálsinum. Verð sko algjörlega reddý fyrir laugardaginn. Það þarf sko að binda mig fasta við rúmið til að ég komist ekki;Þ Hlakka ekkert smá til po lördagen:o)

Jedúdda mía hvað ég blaðra mikið, 98% svefngalsi og bull... ZZzz... Jæja, best að gera eitthvað af viti.

Knús og kram, Moi sjálf/Mæ self
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?