Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

fimmtudagur, desember 06, 2007

Hálftíminn 

Jedúdda mía hvað maður er endalaust latur að blogga. Er svo að kafna í vinnu að ég veit varla hvað ég heiti lengur en svona er það nú stundum:o) Er núna á næturvakt, þeirri fyrri af tveimur.

Þetta er nú ekki beint besta vikan mín í lengd talið en ég hef nú gert eitthvað aðeins til að sýna li haaa.. Fór í gær (þriðjudag) spretti og fór Brúnavegsspretti, er orðin eitthvað Brúnavegsóð þessa dagana, veit nú varla hvað er svona sérstakt við þá en ég náði allavega spretta eins og brjálæðingur niður brekkurnar og er bara talsvert ánægð með það. Fór 3 spretti og með öllu, upphitun og niðurhlaupi var þetta um 8 km. Þarf að æfa mig betur að skokka upp í móti, er alveg hræðileg, vona að þetta lagist eitthvað bráðum, plííísss...

Fór svo í dag á æfingu og tók nú bara hálftímann sem gerir að 5.6 km. Gekk bara fínt og fengum þetta aldeilis flotta veður fyrir utan smá kalda rigningu í smástund. Var að fara á næturvakt og hafði ekki meiri orku í dag, náði ekkert að sofna fyrripartinn þannig að ég varð að stóla á að sofna eitthvað aðeins um kvöldið.

Ætlaði nú að ljóstra einhverju smá upp um þetta verkefni mitt en ég held ég þori því ekki mikið á þessari stundu en örugglega þegar nær dregur. Get þó sagt að ég fór í einhverskonar þolpróf á mánudag sem gekk svona lala og kom ekki alveg rosalega æðislegt úr því en þetta á eftir að bætast hjá sumum, engin spurning (segi ég og hef ekki hugmynd hvað gerist.. hehe.. en ég held ég eftir að standa betur að vígi næst), sjáum hvað setur. Megið allavega alveg hugsa vel til mín, þigg það sko með miklum þökkum:o)

Fer ekki á æfingu á morgun, búin að játa syndir mínar fyrirfram hjá herra foringja og skildi það alveg. Verð sofandi eftir næturvakt og þarf svo að vakna kl. 14:00 til að sækja mömmu í rútuna og rúnta með hana í einhverja doktorsheimsókn og aftur í rútuna þannig að það verður smá keyrsla og önnur næturvakt. Kem í staðinn í stuði í Boggupuð á föstudag og svo í Spa eftir það, kósý:o)

Milljón knús og kram, Moi sjálf

~18 DAGAR TIL JÓLA~
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?